Haustfundaröð SA um Ísland
Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda í september, október og nóvember víða um landið. Haustfundaröð SA ber yfirskriftina Atvinnulífið 2018.
Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA. Boðið verður upp á kaffi og með því og krassandi umræður. Áhugafólk um uppbyggingu atvinnulífsins og öflugt mannlíf er hvatt til að mæta og láta í sér heyra en fulltrúar SA hlakka til að hitta stjórnendur og starfsfólk öflugra fyrirtækja á landsbyggðinni og horfa fram á veginn. Þá munu stjórnendur á hverjum stað ræða stöðu mála á sínum heimavelli.
Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði.
Hagvöxtur er mikill, gengi krónunnar sterkt og verðbólga lág en það eru blikur á lofti.
Niðurstöður kjarasamninga í vetur munu ráða miklu um lífskjör Íslendinga á næstu misserum. Þá verður einnig fjallað um á hverju framtíðar hagvöxtur Íslands mun byggja. Að loknum erindum fara fram umræður og fyrirspurnir.
Boðið verður upp á kaffi og með því og krassandi umræður.
Opnir fundir SA á eftirtöldum stöðum - smelltu til að skrá þig:
-
Vestmannaeyjar þriðjudaginn 19. september kl. 12.00-13.30
-
Akureyri miðvikudaginn 20. september kl. 8.30-10.00
-
Sauðárkrókur miðvikudaginn 20. september kl. 16.30-18.00
-
Neskaupstaður þriðjudaginn 3. október kl. 12.00-13.30
-
Höfn mánudaginn 10. október kl. 12.00-13.30
-
Stykkishólmur þriðjudaginn 17. október kl. 17.00-18.30
-
Reykjanesbær miðvikudaginn 18. október kl. 12.00-13.30
-
Reykjavík fimmtudaginn 19. október kl. 8.30-10.00
-
Ísafirði mánudaginn 20. nóvember kl. 12-13
Smellið á viðkomandi stað til að skrá þátttöku.