Samtök atvinnulífsins hafa á undanförnum vikum efnt til funda víða um landið. Haustfundaröð SA ber yfirskriftina Atvinnulífið 2018 en fimmtudaginn 19. október verður opinn fundur SA í Hörpu kl. 8.30-10.

Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA hér að neðan. Áhugafólk um uppbyggingu atvinnulífsins og öflugt mannlíf er hvatt til að mæta og láta í sér heyra en fulltrúar SA hlakka til að hitta stjórnendur og starfsfólk öflugra fyrirtækja, sveitastjórnarmenn og stjórnmálamenn, og horfa fram á veginn.

Á fundinum munu Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði.

Hagvöxtur er mikill, gengi krónunnar sterkt og verðbólga lág en það eru blikur á lofti. Niðurstöður kjarasamninga í vetur munu ráða miklu um lífskjör Íslendinga á næstu misserum. Þá verður einnig fjallað um á hverju framtíðar hagvöxtur Íslands mun byggja.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan.

Skráning