Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda í september og október víða um landið. Haustfundaröð SA ber yfirskriftina  Atvinnulífið 2018.

Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA. Boðið verður upp á léttan morgunverð og krassandi umræður. Áhugafólk um uppbyggingu atvinnulífsins og öflugt mannlíf er hvatt til að mæta og láta í sér heyra en fulltrúar SA hlakka til að hitta stjórnendur og starfsfólk öflugra fyrirtækja á landsbyggðinni og horfa fram á veginn. Þá munu stjórnendur á hverjum stað ræða stöðu mála á sínum heimavelli.

Á fundinum munu Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði. Hagvöxtur er mikill, gengi krónunnar sterkt og verðbólga lág en það eru blikur á lofti. Niðurstöður kjarasamninga í vetur munu ráða miklu um lífskjör Íslendinga á næstu misserum. Þá verður einnig fjallað um á hverju framtíðar hagvöxtur Íslands mun byggja. Að loknum erindum fara fram umræður og fyrirspurnir.

Fundur SA á Sauðárkróki verður á Kaffi Krók miðvikudaginn 20. september kl. 16.30-18.00.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan.

Skráning