Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda í september, október og nóvember víða um landið. Fundaröð SA ber yfirskriftina Atvinnulífið 2018.
Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA. Boðið verður upp á léttan hádegisverð og krassandi umræður. Áhugafólk um uppbyggingu atvinnulífsins og öflugt mannlíf er hvatt til að mæta og láta í sér heyra en fulltrúar SA hlakka til að hitta stjórnendur og starfsfólk öflugra fyrirtækja og sveitastjórnarmenn á landsbyggðinni og horfa fram á veginn.
Fundur SA á Ísafirði verður á Hótel Ísafirði, mánudaginn 20. nóvember kl. 12-13.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan.