Málstofur um vinnutímastyttingu VR/LÍV

Vinnutímastytting samkvæmt kjarasamningum SA við VR og LÍV kemur til framkvæmda 1. janúar næstkomandi og er gert ráð fyrir að samkomulag verði gert á vinnustöðum um fyrirkomulag styttingar fyrir 1. desember.

Kynningarefni Samtaka atvinnulífsins verður aðgengilegt á vinnumarkaðsvef SA.

Ýmsir valkostir eru við innleiðingu vinnutímastyttingar og mjög mikilvægt fyrir atvinnurekendur og launafólk að vel takist til.

Samtök atvinnulífsins bjóða því stjórnendum aðildarfyrirtækja upp á námskeið/málstofur þar sem farið verður yfir góða framkvæmd vinnutímastyttingar. SA munu leita til valinna fyrirtækja um að kynna hugmyndir/áform um framkvæmdina og góður tími verður fyrir umræður.

Þrjár málstofur  verða í október en fleirum verður bætt við ef þörf krefur:

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA – smelltu á viðkomandi dagsetningu til að skrá þig.

Málstofurnar verða í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, og geta allt að 50 tekið þátt í hvert sinn.