Vinnutímastytting samkvæmt kjarasamningum SA við VR og LÍV kemur til framkvæmda 1. janúar næstkomandi og er gert ráð fyrir að samkomulag verði gert á vinnustöðum um fyrirkomulag styttingar fyrir 1. desember.

Kynningarefni Samtaka atvinnulífsins verður aðgengilegt á vinnumarkaðsvef SA

Ýmsir valkostir eru við innleiðingu vinnutímastyttingar og mjög mikilvægt fyrir atvinnurekendur og launafólk að vel takist til.

Samtök atvinnulífsins bjóða því stjórnendum aðildarfyrirtækja upp á námskeið/málstofur í Húsi atvinnulífsins þar sem farið verður yfir góða framkvæmd vinnutímastyttingar. SA munu leita til valinna fyrirtækja um að kynna hugmyndir/áform um framkvæmdina og góður tími verður fyrir umræður.

Fyrsta málstofan verður 16. október kl. 8.30-10 og er fullbókað á hana og skráningu því lokið.

Farið verður yfir sama efni 18. október og 22. október:

Allt að 50 geta tekið þátt í hvert sinn og verður fleiri málstofum bætt við ef þörf krefur.