Vinnutímastytting samkvæmt kjarasamningum SA við VR og LÍV kemur til framkvæmda 1. janúar næstkomandi og er gert ráð fyrir að samkomulag verði gert á vinnustöðum um fyrirkomulag styttingar fyrir 1. desember.

Kynningarefni Samtaka atvinnulífsins verður aðgengilegt á vinnumarkaðsvef SA

Ýmsir valkostir eru við innleiðingu vinnutímastyttingar og mjög mikilvægt fyrir atvinnurekendur og launafólk að vel takist til.

Samtök atvinnulífsins bjóða því stjórnendum aðildarfyrirtækja upp á námskeið/málstofur þar sem farið verður yfir góða framkvæmd vinnutímastyttingar. SA munu leita til valinna fyrirtækja um að kynna hugmyndir/áform um framkvæmdina og góður tími verður fyrir umræður.

Þriðja málstofan verður 22. október kl. 8.30-10.00 en fleirum verður bætt við ef þörf krefur.

Málstofan fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, í salnum Hyl á 1. hæð. Allt að 50 geta tekið þátt í hvert sinn.

SKRÁNING