Siðferði í góðu lagi hjá íslenskum stjórnendum
Yfirskrift morgunverðarfundarins var Traust í viðskiptalífinu - Getur gott siðferði borgað sig? Frummælendur voru Halldór Reynisson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu, Gylfi Magnússon, dósent við viðskipta- og hagfræðideild HÍ og Þröstur Olaf Sigurjónsson, aðjúnkt við viðskiptadeild HR. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, fréttamaður, sá um fundarstjórn, en í pallborðsumræðum tóku þátt þau Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar, Erlendur Hjaltason, framkvæmdastjóri Meiðs, Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík og Jón Sigurðsson, Seðlabankastjóri.
Það borgar sig að breyta rétt
Erindi frummælenda á fundinum má nálgast hér á síðunni auk
ítarefnis en fyrstur á stokk steig Halldór Reynisson. Hann velti
þeirri spurningu fyrir sér hvort það borgaði sig að breyta rétt og
komst að þeirri niðurstöðu að svo væri - þegar upp væri staðið.
"Fyrirtæki sem eru þekkt fyrir siðferðilegan sjálfsaga halda betur
viðskiptavinum en önnur sagði Halldór og bætti því auk þess við að
því fylgdi oft mikil vanlíðan hjá stjórnendum sem yrðu uppvísir að
því að brjóta almennt viðurkennd siðalögmál eða lög. Sjá
erindi Halldórs
Efnahagslíf án trausts óhugsandi
Gylfi Magnússon ræddi um í erindi sínu um hagfræði trúverðugleika
og í meðfylgjandi grein kafar Gylfi dýpra í efnið. "Nánast öll
viðskipti byggja á trausti að meira eða minna leyti. Væri það ekki
til staðar myndi hægja svo mjög á hjólum efnahagslífsins að það
yrði vart svipur hjá sjón," segir Gylfi. Máli sínu til stuðnings
nefndi Gylfi uppboðsvefinn eBay á Netinu, þar sem traust spilar
mikilvægt hlutverk í viðskiptum manna. Í máli Gylfa í morgun kom
fram að Íslendingar væru ótvírætt í hópi þeirra þjóða sem hafa
skilvirkast efnahagslíf - það bendi til þess að þær stofnanir sem
við höfum komið okkur upp flækist ekki um of fyrir efnahagslífinu.
Gylfi sagði félagsauð Íslendinga hafa vaxið að undanförnu og annan
auð með honum. Félagsauður Íslendinga væri mikill á flestum sviðum,
og eitt dæmi um aukinn félagsauð væri samruni íslensks
fjármálamarkaðar við fjármálamarkað nágrannalandanna. Sjá
erindi Gylfa
Gott siðferði
Þá kynnti Þröstur Olaf Sigurjónsson, aðjúnkt við viðskiptadeild HR,
nýja könnun sem hann gerði meðal 400 íslenskra stjórnenda um
viðhorf þeirra til siðferðis í íslensku viðskiptalífi. Niðurstöðu
könnunarinnar í heild má finna hér að neðan, en meðal þess sem þar
kemur fram er að 60% svarenda eru sammála því að siðferði í
viðskiptum hafi farið batnandi undanfarin ár og telja jafnframt að
siðferði í viðskiptum sé gott miðað við nágrannalönd okkar. Þá
segjast 78% svarenda að stjórnendur séu gerðir ábyrgir fyrir brotum
á siðareglum fyrirtækis en í könnuninni kom fram að tvö af hverjum
þremur fyrirtækjum hafi innleitt eigin siðareglur. Nær allir
stjórnendur, eða 93% þeirra, telja að það komi í bakið á mönnum ef
þeir breyta rangt í viðskiptum. Stjórnendur segja þá eldri betri en
þá yngri og eru yngri stjórnendur eru sammála því. Kvenstjórnendur
viðhafa síðan betra siðferði en karlar, um það eru bæði kynin
sammála.
Sjá slæður Þrastar

Fjörugar umræður
Í pallborðsumræðum kom fram hjá Erlendi Hjaltasyni að hann
telji að íslensk fyrirtæki séu vel meðvituðum um ábyrgð sína í
samfélaginu - þau taki verulegan þátt í ýmsum félagslegum
verkefnum. Benedikt Jóhannesson sagði smæð íslenska markaðarins
kalla á varúð, að traust þyrfti að ríkja í umhverfi
viðskiptalífsins ekki síður en í viðskiptalífinu sjálfu og vísaði
þar til eftirlitsstofnana og fjölmiðla. Hann sagði mikilvægt að
reglur væru skýrar og að þær giltu um alla, það væri einnig
mikilvægt að málsmeðferð væri hröð. Það væri ekki gott að menn sætu
undir grun um eitthvað misjafnt í langan tíma án þess að niðurstaða
fengist.
Erlendur Hjaltason sagði á fundinum að siðferðisvitund íslenskra
stjórnenda væri að verða alþjóðlegri enda þyrftu stærri fyrirtæki
landsins að spila eftir þeim leikreglum sem væru við lýði í Evrópu.
Guðfinna Bjarnadóttir sagði að eflaust væru Íslendingar betur á
vegi staddir en oft væri í veðri látið vaka og hún sagðist ekki
vera talsmaður þess að hér þyrfti að setja viðskiptalífinu
strangari reglur. Jón Sigurðsson, tók undir þau orð og sagði að
orðheldni í viðskiptalífinu væri ómetanleg til fjár - það væri
aldrei hægt að setja formlegar reglur sem næðu yfir allt
viðskiptalífið. Varast ætti ennfremur að skilgreina siðferði eftir
því hvort það ætti við í opinbera geiranum, einkalífinu eða í
viðskiptum - annað hvort séu menn heiðarlegir og orðheldnir eða
ekki.