Helle Johansen: Tími kominn til að horfa fram á veginn
"Rúmlega þrjú ár eru nú liðin frá því Ísland lenti í hringiðu hinnar alþjóðlegu fjármálakrísu í október 2008. Síðan hafa mörg fyrirtæki gengið í gegnum endurskipulagningu á rekstri sínum og þurft að segja upp starfsfólki. Nú er hins vegar tími til kominn að horfa fram á veginn og hefja endurreisn með því að byggja upp traust á ný. Global Compact (sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð) getur hjálpað fyrirtækjum á þeirri vegferð." Þetta segir Helle Johansen, forstöðumaður hjá UNDP í Kaupmannahöfn, í grein á vef SA.
Grein eftir Helle Johansen hjá UNDP í
Kaupmannahöfn:
Hvernig geta íslensk fyrirtæki hagnast á því að skrifa undir Global Compact?
"Sáttmáli Sameinuðu
þjóðanna um samfélagsábyrgð, Global Compact, er helsta framtak í
heimi á sviði samfélagsábyrgðar fyrirtækja (e. Corporate Social
Responsibility / CSR). Þann 25. október sl. efndu Samtök
atvinnulífsins og UNDP í Kaupmannahöfn (skrifstofa Þróunaráætlunar
Sameinuðu þjóðanna) til morgunverðarfundar og námskeiðs um
samfélagsábyrgð og atvinnulífið í samstarfi við Íslandsstofu og
Þekkingarsetur um samfélagsábyrgð fyrirtækja.
Yfir 50 þátttakendur úr atvinnulífinu, stjórnkerfinu og háskólasamfélaginu mættu til fundarins en yfirskrift hans var Samfélagsábyrgð og sóknarfæri en fjallað var um hvernig samfélagsábyrgð í rekstri geti opnað ný viðskiptatækifæri og aukið veltu fyrirtækja.
Hin mikla þátttaka á fundinum sýnir að íslensk fyrirtæki er opin fyrir því að taka aukinn þátt í umræðu um samfélagsábyrgð og kynna sér hvernig unnt er að skapa ný viðskiptatækifæri með því að gera samfélagsábyrgð sýnilega í rekstri og stefnumótun fyrirtækjanna.
Á fundinum kynnti skrifstofa Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn 10 grunngildi Global Compact og þær skuldbindingar sem fyrirtæki gangast undir með því að skrifa undir sáttmálann. Einnig um hvaða hag fyrirtæki hafa af því að setja samfélagsábyrgð á oddinn, sérstaklega á tímum niðursveiflu í efnahagslífinu þegar reynir á stjórnendur fyrirtækja að skila jákvæðri afkomu. Þá fjallaði Jacob Stockerbye stofnandi danska sjávarréttafyrirtækisins Butler's Choice um sjálbærni í fiskeldi og hvernig fyrirtækinu hafa opnast nýir markaðir með því að gera samfélagsábyrgð að mikilvægum þætti í viðskiptaáætlun þess. Einnig fjallaði Anna Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans um sýn fyrirtækisins á samfélagsábyrgð fyrirtækja. Anna er einnig stjórnarformaður Þekkingaseturs um samfélagsábyrgð fyrirtækja og sagði frá markmiðum með stofnun setursins og helstu áherslum í starfi þess en setrið verður starfrækt í nánu samstarfi við háskólasamfélagið.
Global Compact getur hjálpað fyrirtækjum að endurvinna
traust
Rúmlega þrjú ár eru nú liðin frá því Ísland lenti í
hringiðu hinnar alþjóðlegu fjármálakrísu í október 2008. Frá þeim
tíma hafa mörg fyrirtæki gengið í gegnum endurskipulagningu á
rekstri sínum og þurft að segja upp starfsfólki. Nú er hins vegar
tími til kominn að horfa fram á veginn og hefja endurreisn með því
að byggja upp traust á ný. Global Compact getur hjálpað fyrirtækjum
á þeirri vegferð en samkvæmt könnun árið 2010 meðal þeirra sem
höfðu þá skrifað undir sáttmálann (meira en 1.000 svarendur
um allan heim) þá var meginástæða þess að fyrirtækin skrifuðu undir
sú að Global Compact veitir þeim tækifæri til að bæta orðspor
sitt.
Hvers vegna er samfélagsábyrgð mikilvæg fyrir íslensk
fyrirtæki?
Samfélagsábyrgð er mikilvæg öllum fyrirtækjum á Íslandi
sem nýta náttúruauðlindir við starfsemi sína, starfa í
fjármálastarfsemi eða framleiða vörur eða veita þjónustu á mörkuðum
sem gera miklar kröfur á sviði umhverfismála og aðbúnaðar
starfsfólks.
Sjávarútvegur og ferðaþjónusta eru tvær lykilgreina í íslensku efnahagslífi en fyrirtæki innan þeirra eru í auknum mæli að mæta kröfum viðskiptavina um sjálfbærni og ábyrga stjórnarhætti. Neytendur eru meðvitaðri en áður um vörur og þjónustu sem þeir kaupa og sífellt fleiri vilja fá skýringar á því hvernig framleiðslan á sér stað og hver grunngildi fyrirtækjanna eru. Innan beggja greina eru fyrirtæki á Íslandi sem hafa staðið sig vel í þessum efnum. Í sjávarútveginum má t.d. nefna að fyrirtæki hafa ákveðið að taka upp upprunamerki fyrir íslenskt sjávarfang (Iceland Responsible Fisheries). Tilgangur merkisins er að tryggja kaupendum og neytendum upplýsingar um að íslenskar sjávarafurðir eigi uppruna sinn í ábyrgum fiskveiðum Íslendinga.
Álframleiðsla og orkunýting eru einnig greinar þar sem mikilvægi málefna sem tengjast samfélagsábyrgð hafa aukist vegna umhverfisáhrifa fyrirtækja í þessum greinum. Margir koma þar að borðinu, t.d. sveitarfélög, eigendur, fjárfestar og frjáls félagasamtök.
Þá þurfa fjármálafyrirtækin að byggja upp traust eftir hrun fjármálakerfisins haustið 2008 og auka áherslu á góða stjórnarhætti og gagnsæi í starfsemi sinni.
Gagn af því að skrifa undir Global Compact
Fyrirtæki sem skrifa undir Global Compact hafa af því margvíslegan hag. Fyrirtæki sem hafa skrifað undir nefna sjálf eftirfarandi þætti:
Aðgangur að tengslaneti
Íslensk fyrirtæki sem skrifa undir Global Compact geta
tekið þátt í norrænu tengslaneti þeirra sem hafa skrifað undir
sáttmálann (Global Compact Nordic Network), en tvisvar á ári eru
haldnir upplýsingafundir / ráðstefnur um samfélagsábyrgð fyrirtækja
þar sem þátttakendur miðla af reynslu sinni og ræða málefni sem eru
efst á baugi samfélagsábyrgðar. Þeir sem vilja kynna sér starfsemi
norræna tengslanetsins geta haft samband við Hörð Vilberg hjá SA, í
síma 591-0005 eða með tölvupósti á hordur@sa.is.
Þátttakendur geta jafnframt tekið þátt í starfi sambærilegra tengslaneta út um allan heim, t.d. fyrirtæki sem eru með dótturfyrirtæki í fjarlægum löndum.
Verkfæri til að vinna með samfélagsábyrgð
Global Compact hvetur fyrirtæki til að fást við málefni
sem tengjast rekstrinum og gildum fyrirtækisins. Bestur árangur
næst þegar viðmið Global Compact eru samtvinnuð viðskiptaáætlun
fyrirtækisins.
Tengsl við Sameinuðu Þjóðirnar
Global Compact er hluti af starfsemi Sameinuðu þjóðanna
og sjá mörg fyrirtæki sér hag í því að tengja vörur sínar og
þjónustu starfsemi þeirra. Mörg fyrirtæki telja það mjög mikilvægt
að geta notað merki Global Compact og tengingu við S.Þ. í
markaðsstarfi sínu.
Global Compact byggir á almennum gildum
Sáttmáli S.Þ. um samfélagsábyrgð byggir á 10 almennum og
alþjóðlega viðurkenndum gildum. Hann gagnast því vel í samskiptum
aðila í ólíkum menningarheimum.
Gagnleg hjálpartæki
Global Compact gefur reglulega út rit og veftól af ýmsu
tagi til að hjálpa fyrirtækjum að innleiða 10 gildi sáttmálans.
Skuldbinding vegna Global Compact:
Þegar fyrirtæki skrifa undir Global Compact er ætlast til
þess að þau hafi eftirfarandi í heiðri:
Æðstu stjórnendur tileinki sér viðmið Global Compact og vinni með þau í daglegu starfi. Einnig að upplýsa alla stafsmenn fyrirtækisins um nálgunina til að allir rói í sömu átt.
Viðmið Global Compact eiga að vera hluti af daglegri starfsemi og menningu þeirra fyrirtækja sem skrifa undir.
Fyrirtæki leggi sitt af mörkum til þróunarverkefna í víðum skilningi (þar á meðal Árþúsundamarkmiða S.Þ) t.d. með samstarfi heima fyrir eða á alþjóðlegum vettvangi.
Fyrirtæki geri grein fyrir því hvernig starfi þeirra að samfélagsábyrgð er háttað í ársskýrslu eða sjálfbærniskýrslu (e. Communication on Progress).
Fyrirtæki taki þátt í að kynna viðmið Global Compact og mikilvægi ábyrgra viðskipta í samskiptum við birgja, viðskiptavini og almenning.
Hlutverk skrifstofu UNDP í Kaupmannahöfn
Skrifstofa þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn (UNDP) hefur það hlutverk að kynna Global Compact og fá fleiri fyrirtæki til að slást í hópinn. Skrifstofan hefur sinnt þessu hlutverki frá 2003 á Norðurlöndunum og á Íslandi sérstaklega frá árinu 2007. Á Íslandi vinnur UNDP með Samtökum atvinnulífsins, sem er tengiliður við Global Compact á Norðurlöndum, og utanríkisráðuneytinu sem hefur styrkt kynningarstarf vegna Global Compact á Íslandi.
Um Global Compact
Sameinuðu þjóðirnar hleyptu Global Compact af stokkunum árið 2000, en um er að ræða ákall til fyrirtækja heimsins um að laga rekstur sinn að 10 viðmiðum sáttmálans um samfélagsábyrgð og styðja helstu markmið S.Þ. Um er að ræða viðmið á sviði mannréttinda, vinnumarkaðsmála, umhverfismála og baráttu gegn hvers kyns spillingu. Með því að skrifa undir Global Compact og taka virkan þátt í starfi sem tengist samfélagsábyrgð geta fyrirtæki lagt sitt af mörkum til að þróa markaðshagkerfi heimsins í þá átt að það komi bæði efnahagslífinu til góða og samfélögum út um allan heim. Nú hafa um 6.200 fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum skrifað undir, ásamt 2.500 aðilum úr háskólasamfélaginu, frjálsum félagasamtöku og sveitarfélögum í meira en 135 löndum. Það gerir Global Compact að öflugasta framtakinu á sviði samfélagsábyrgðar fyrirtækja í heiminum.
Helle Johansen, Head of Business Outreach, UNDP Nordic Office in Copenhagen, helle.johansen@undp.dk
Sjá nánar:
Vefur Global Compact: www.globalcompact.org
Norrænt tengslanet Global Compact: www.gcnordic.net
Viðmið Global Compact á íslensku
Tengt efni:
Glærukynning Helle Johansen frá opnum fundi 25. október
Glærukynning Helle Johansen frá námskeiði 25. október
Glærukynning Önnu Bjarkar Bjarnadóttur á opnum fundi 25. október