Heilbrigðiskerfið á krossgötum - fundur 25. ágúst

Björn Zoega, forstjóri Karolinska sjúkrahússins og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins eru meðal þeirra sem halda erindi á sérstökum fundi SA og SVÞ um heilbrigðismál sem ber yfirskriftina Heilbrigðiskerfið á krossgötum.

Fundurinn fer fram á Grand hótel þann 25. ágúst næstkomandi, klukkan 16:00.

Kynning á tillögum SA:

Heilbrigðiskerfið á krossgötum

Skráning á fundinn fer fram hér.

Dagskrá fundarins:

  • Heilbrigðisþjónusta á tímamótum. Ný nálgun, nýjar áherslur
    Halldór Benjamín Þorbergsson – framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
     
  • Að horfa heim á íslenskt heilbrigðiskerfi
    Björn Zoëga – forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð
     
  • Reynsla heilsugæslunnar af fjölbreyttum rekstrarformum, árangur og áskoranir
    Gunnlaugur Sigurjónsson – læknir og stofnandi Heilsugæslunnar Höfða
     
  • Samningagerð í heilbrigðisþjónustu
    Kristján Guðmundsson, háls-nef- og eyrnalæknir
     
  • Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu
    Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir – stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect
     
  • Reynsla notanda, saga úr íslensku heilbrigðiskerfi
    Guðmundur Grétar Bjarnason – eftirlaunaþegi

Fundarstjóri:
Dagný Jónsdóttir – formaður Samtaka heilbrigðisfyrirtækja

Skráning á fundinn fer fram hér.

Viðburðinum verður einnig streymt.