Björn Zoega, forstjóri Karolinska sjúkrahússins, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi Köru Connect og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins verða meðal þeirra sem koma fram á fundi SA og SVÞ á Grand hótel þann 25. ágúst næstkomandi, klukkan 16:00.
Viðburðinum verður einnig streymt.
Kynning: Heilbrigðiskerfið á krossgötum
Dagskrá fundarins:
- Heilbrigðisþjónusta á tímamótum. Ný nálgun, nýjar áherslur
Halldór Benjamín Þorbergsson – framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
- Að horfa heim á íslenskt heilbrigðiskerfi
Björn Zoëga – forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð
- Reynsla heilsugæslunnar af fjölbreyttum rekstrarformum, árangur og áskoranir
Gunnlaugur Sigurjónsson – læknir og stofnandi Heilsugæslunnar Höfða
- Samningagerð í heilbrigðisþjónustu
Kristján Guðmundsson, háls-nef- og eyrnalæknir
- Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir – stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect
- Reynsla notanda, saga úr íslensku heilbrigðiskerfi
Guðmundur Grétar Bjarnason – eftirlaunaþegi
Fundarstjóri:
Dagný Jónsdóttir – formaður Samtaka heilbrigðisfyrirtækja