Fundaröð Samtaka atvinnulífsins 2018

Á næsta ári verður samið um lífskjör Íslendinga í fjölda kjarasamninga. Eyjólfur Árni Rafnsson formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA og Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði og ræða svigrúm til launahækkana næstu árin á fjölda opinna funda hringinn í kringum landið næstu vikurnar.

Fundaröðin hefst á Ísafirði miðvikudaginn 12. september og lýkur í Reykjavík fimmtudaginn 1. nóvember. Tölum saman er yfirskrift fundanna og eru allir velkomnir en hægt er að skrá þátttöku hér að neðan með því að smella á fundarstað nálægt þér.

Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með sex aðildarsamtökum sem starfa á grunni atvinnugreina. Yfir 2.000 fjölbreytt fyrirtæki eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins, allt frá sjálfstætt starfandi frumkvöðlum til stærstu fyrirtækja landsins. Hjá aðildarfyrirtækjum SA starfa um 100.000 starfsmenn.