Á næsta ári verður samið um lífskjör Íslendinga í fjölda kjarasamninga.
Eyjólfur Árni Rafnsson formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA og Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði og ræða svigrúm til launahækkana næstu árin á fjölda opinna funda hringinn í kringum landið.
Fundur SA á Ísafirði verður haldinn miðvikudaginn 12. september kl. 12-13.30 í Stjórnsýsluhúsinu á 4. hæð. Tölum saman er yfirskrift fundarins og eru allir velkomnir en hægt er að skrá þátttöku hér að neðan. Boðið verður upp á létta hádegishressingu.
Sjáumst!
Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með sex aðildarsamtökum sem starfa á grunni atvinnugreina. Yfir 2.000 fjölbreytt fyrirtæki eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins, allt frá sjálfstætt starfandi frumkvöðlum til stærstu fyrirtækja landsins. Hjá aðildarfyrirtækjum SA starfa um 100.000 starfsmenn.