Félagsdómur túlkar útkallsákvæði kjarasamninga
Fallið hafa tveir dómar í Félagsdómi um skilning á útkallsákvæðum kjarasamninga.
Endurtekin útköll
Í fyrra málinu var dæmt að ekki sé um nýtt útkall að ræða þegar
haft er samband við starfsmann, sem þegar hefur verið kallaður út,
og hann beðinn að vinna annað verk innan útkallstímans. Skiptir þá
ekki máli hvort starfsmaðurinn er á þeirri stundu staddur á
vinnustaðnum eða utan hans. Starfsmaður, sem kallaður hefur verið
út, sé þar með kominn í vinnuna næstu 4 klukkustundir en það er sú
lágmarksgreiðsla sem umrætt samningsákvæði tryggir. Byggir
dómurinn á því að ekki sé greitt fyrir óunninn tíma nema skýr og
ótvíræð ákvæði kjarasamnings kveði á um slíkt.
Sjá mál nr. 5/2003.
Fjarlausnir og símtöl
Í síðara málinu var dæmt að útkallsákvæði kjarasamnings ættu
einungis við um kvaðningu til vinnu sem feli í sér að starfsmaður
þurfi að fara á vinnustað.
Sjá mál nr. 6/2003 (pdf-skjal).