Boðað er til fjarfundar 17. mars frá 13:00 - 14:00 fyrir félagsmenn þar sem Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra kynnir átakið Hefjum störf og sérfræðingar Samtaka atvinnulífsins og Vinnumálastofnunar fara nánar yfir úrræðin og sitja fyrir svörum.

Farið verður í gegnum skilyrði úrræðisins og markmið, samspil þess við úrræði stjórnvalda um stuðning launa á uppsagnarfresti og hlutabótaleiðina. Síðast en ekki síst verður farið yfir umsóknarferlið og framkvæmdina.

Um er að ræða klukkustundarfund í gegnum fjarfundarforrit. Félagsmönnum gefst færi á að senda spurningar í gegnum spjallþráð forritsins, en slóðin á fundinn verður send út með tölvupósti þegar nær dregur. Ítarlegar upplýsingar um ráðningarstyrk má finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Ath. upplýsingafundurinn er aðeins ætlaður félagsmönnum SA.

Hér má skrá sig á fundinn:

Upplýsingafundur um ráðningarstyrk