Vorið 2018 bjóða Samtök atvinnulífsins félagsmönnum sínum upp á fræðslufundi um starfsmannamál og kjarasamninga á landsbyggðinni. Fundirnir gagnast öllum sem hafa starfsmannamál á sinni könnu.
Farið verður yfir fjölbreytt efni og fyrirspurnum svarað en yfirlit yfir efni fundanna og dagsetningar má sjá hér á vef SA.
Fundurinn á Akureyri fer fram þriðjudaginn 24. apríl á Hótel Kea kl. 13-17.
Meðal þess sem verður farið yfir er ráðning starfsmanna, vinnufyrirkomulag, orlofs- og veikindaréttur, uppsagnir og starfslok. Lögfræðingar á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins sjá um fræðsluna.
Fundirnir eru opnir starfsfólki aðildarfyrirtækja SA og nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan.