Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda í september, október og nóvember víða um landið. Fundaröð SA ber yfirskriftina Atvinnulífið 2018.

Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA. Boðið verður upp á léttan hádegisverð og krassandi umræður. Áhugafólk um uppbyggingu atvinnulífsins og öflugt mannlíf er hvatt til að mæta og láta í sér heyra en fulltrúar SA hlakka til að hitta stjórnendur og starfsfólk öflugra fyrirtækja á landsbyggðinni og horfa fram á veginn. Þá munu stjórnendur á hverjum stað ræða stöðu mála á sínum heimavelli.

Sjá nánar um fundaröðina hér

Fundur SA á Selfossi verður á Hótel Selfossi, fimmtudaginn 2. nóvember kl. 12-13.30.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan.

Skráning