Samtök atvinnulífsins bjóða starfsfólki aðildarfyrirtækja SA upp á þrjá fræðslufundi í febrúar og mars um starfsmannamál og kjarasamninga. Fundirnir fara fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, kl. 8.30-11.
Lögfræðingar á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins sjá um fræðsluna sem gagnast öllum sem koma að starfsmanna- og launamálum fyrirtækja.
Fræðslunni er skipt upp í þrjá hluta og geta þátttakendur skráð sig í þá alla eða staka. Hver hluti tekur tvær og hálfa klukkustund og gefst tækifæri til umræðna og fyrirspurna. Farið verður yfir raunhæf ágreiningsefni og niðurstöður dómstóla þar sem við á.
Fræðslufundirnir verða haldnir í salnum Kviku á 1. hæð. Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Annar fundurinn er 16. febrúar, dagskrá og skráning hér að neðan.
DAGSKRÁ
Orlofsréttur
Réttur til orlofs, réttur til orlofslauna, ávinnsla og greiðsla, skipulagning orlofstöku
Veikindi og vinnuslys
Réttur til launa í veikindum, útreikningur veikindaréttar, vottorð, slys, veikindi barna
Fæðingar-og foreldraorlof
Tilkynningar, tilhögun, uppsöfnun réttinda, uppsagnarvernd
Uppsagnir og starfslok
Uppsagnarfrestur, framkvæmd uppsagna, sérstök uppsagnarvernd, riftun, áminning, brotthlaup úr starfi, hópuppsagnir
Trúnaðarmenn stéttarfélaga
Réttindi trúnaðarmanna, uppsagnarvernd
Fræðslumál
Starfsmenntasjóðir, símenntun, attin.is