Samtök atvinnulífsins bjóða félagsmönnum sínum upp á fræðslufundi um starfsmannamál og kjarasamninga sem gagnast öllum sem hafa starfsmannamál á sinni könnu. Fundað verður um land allt fram til vors 2020.
Fræðslufundur SA verður á Ísafirði, mánudaginn 16. mars á Hótel Ísafirði kl. 12-15.30.
Fundirnir eru opnir starfsfólki aðildarfyrirtækja SA. Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan til að tryggja ykkur sæti.
Meðal þess sem verður fjallað um:
- Ráðning starfsmanna
- Helstu réttindi og skyldur starfsmanna og vinnuveitanda
- Vinnutímastytting Lífskjarasamningsins 2019-2022
- Uppsagnir og starfslok
- Orlofsréttur
- Veikindi og vinnuslys
Lögfræðingar á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins sjá um fræðsluna.