Yfirlýsing stjórnar Samtaka atvinnulífsins
Gagnrýni forseta Íslands á forsvarsmenn í íslensku atvinnulífi er ómakleg. Samtök atvinnulífsins hafa undanfarin ár reynt að skapa trúverðugar væntingar svo fjárfestingar sem nú eru í algjöru lágmarki verði meiri. Samtökin og aðildarsamtök þeirra hafa í ræðu, riti og á vefjum sínum birt fjölmörg dæmi um jákvæða þróun í einstökum fyrirtækjum.
Þá hafa SA lagt fram margvíslegar tillögur um hvernig unnt sé að komast út úr kreppunni. Í þessu sambandi má nefna tvö rit: Hagsýn, framsýn og áræðin atvinnustefna og Atvinna fyrir alla, aðgerðaáætlun um uppbyggingu atvinnulífsins. Við gerð kjarasamninga á þessu ári hefur verið lögð áhersla á að fara ATVINNULEIÐINA og mikilvægi þess að auka framboð vinnu í þjóðfélaginu.
Samtök atvinnulífsins munu í framhaldi af orðum forseta Íslands senda embættinu ofangreind rit ásamt ýmsum upplýsingum öðrum sem gott væri fyrir forseta að kynna sér áður en hann næst gefur yfirlýsingar um málflutning SA.
11. apríl 2011
Stjórn Samtaka atvinnulífsins
Tengt efni:
Þetta þarf ekki að vera
svona
Ársskýrsla SA
2010-2011
Atvinnuleiðin - ályktun stjórnar SA 1. febrúar 2011
Atvinnuleiðin - gögn frá kynningarfundi SA