Yfirlýsing Samtaka atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins eru slegin yfir þeim fréttum sem birst hafa síðustu daga og snúa að viðskiptum Samherja í Afríku. Alvarleg mál hafa komið upp á yfirborðið og einboðið að þau verði rannsökuð gaumgæfilega af þar til bærum yfirvöldum. Það er jákvætt að stjórn fyrirtækisins hafi lýst því yfir og hafist handa með afdráttarlausum aðgerðum að endurvinna traust.
Viðbrögð þurfa að vera í samræmi við alvarleika hinna meintu brota og fyrirtækið þarf að leggja spil sín á borðið gagnvart þeim eftirlitsaðilum sem í hlut eiga. Það eru heildarhagsmunir okkar allra að þessi mál upplýsist fljótt og að orðspor þjóðarinnar og atvinnulífs á Íslandi, innanlands sem utan, skaðist sem minnst vegna þeirra.
Nú þarf að leiða í ljós hvort og hverjar af þessum alvarlegu ásökunum eigi við rök að styðjast. Reynist svo vera þá þarf að senda skýr skilaboð um að háttsemi af þessu tagi verði ekki liðin, hvorki í atvinnulífinu hér á landi né annars staðar þar sem íslensk fyrirtæki hafa starfsemi.
Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.