Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar vegna samkomulags SA og ASÍ
Ríkisstjórn Íslands hefur sent frá sér svohljóðandi yfirlýsingu:
13/12/2001
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
vegna samkomulags
Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins
1. Stöðugleiki í efnahagsmálum
Efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar sem meðal annars er lögð til
grundvallar í fjárlögum ársins 2002 miðar að því að tryggja
stöðugleika í efnahagsmálum, styrkja undirstöður atvinnulífsins og
stuðla að bættum lífskjörum. Mikilvægt er að þessi sjónarmið séu
einnig höfð að leiðarljósi við ákvarðanir í launa- og
verðlagsmálum. Ríkisstjórnin lýsir stuðningi við þau markmið sem
aðilar vinnumarkaðarins hafa náð samkomulagi um.
2. Aðhald í ríkisfjármálum
Ríkisstjórnin telur afar mikilvægt að áfram verði fylgt
aðhaldssamri stefnu í ríkisfjármálum. Í fjárlögum fyrir árið
2002 er gert ráð fyrir sama afgangi og ákveðinn var í
fjárlagafrumvarpinu þrátt fyrir að staða efnahagsmála hafi heldur
færst til verri vegar að undanförnu. Með þessari ákvörðun eru send
afar skýr skilaboð til allra aðila um að meginmarkmið stjórnvalda í
efnahagsmálum nái fram að ganga. Áform ríkisstjórnarinnar um sölu
ríkisfyrirtækja, uppbyggingu stóriðju og fyrirhugaðar breytingar á
skattalegu umhverfi einstaklinga og atvinnulífs styðja þessi
markmið.
3. Lánamál ríkissjóðs
Stefnan í lánamálum ríkissjóðs tekur einkum mið af
almennri þróun efnahagsmála, og mun taka tillit til markmiða
samkomulags aðila vinnumarkaðarins, og stöðunni á innlendum
lánamarkaði. Þetta getur falið í sér breytingar á
lánasamsetningu ríkissjóðs án þess að um aukningu heildarskulda
verði að ræða. Ríkissjóður hefur á þessu ári aukið lántökur
sínar á erlendum markaði í því skyni að styðja við gengi krónunnar
og hamla gegn verðbólgu. Á innlendum lánamarkaði verður áfram
stefnt að því að styrkja vaxtamyndun og auka skilvirkni
markaðarins. Á árinu 2002 verður þannig horft jafnt til
áhrifa lánamála ríkissjóðs á gengi krónunnar og langtímaáhrifa á
innlenda eftirspurn og verðbólgu.
4. Lækkun á grænmetisverði og
verðkannanir
Ríkisstjórnin mun í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa
stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og bænda beita sér fyrir því að
tollar á grænmeti verði felldir niður á nokkrum mikilvægum afurðum
og í öðrum tilvikum lækkaðir verulega. Í staðinn verða m.a. teknar
upp beingreiðslur til framleiðenda. Þessar ráðstafanir munu leiða
til verulegrar lækkunar á grænmetisverði til neytenda og stuðla að
lækkun verðbólgu. Þessu verður fylgt eftir með öflugri
upplýsingagjöf um verðmyndun á þessum vörum.
Verðkannanir ASÍ á öðrum sviðum eru einnig mikilvægar til þess að
hafa áhrif á verðlag og verður sú starfsemi efld.
5. Efling starfsfræðslu í
atvinnulífinu
Ríkisstjórnin mun í samstarfi við Alþýðusamband Íslands og Samtök
atvinnulífsins beita sér fyrir endurskipulagningu á starfsfræðslu í
atvinnulífinu. Markmiðið er bæði að auka framboð á starfsfræðslu og
tryggja starfsemina. Samhliða því verði þessum málum komið í
fastari skorður með skilvirkari samvinnu þeirra aðila sem sinna
þessum verkefnum.
6. Lækkun tryggingagjalds
Gangi verðlagsmarkmið kjarasamninganna eftir mun
ríkisstjórnin beita sér fyrir lækkun tryggingagjalds um 0,27%, eða
úr 6% í 5,73%, á árinu 2003. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að
áfram verði ítrasta aðhalds gætt í ríkisfjármálum til þess að
tryggja stöðugleika í efnahagsmálum til frambúðar. Þessi markmið
verða höfð að leiðarljósi við undirbúning og gerð fjárlaga fyrir
árið 2003.