Vöxtur færist til jaðarsvæða höfuðborgarsvæðisins
Margt bendir til þess að framleiðslufyrirtæki muni í auknum mæli flytjast frá höfuðborgarsvæðinu til nærliggjandi sveitarfélaga á komandi árum. Hér er átt við staði eins og Akranes, Borgarbyggð, Árborg, Hveragerði og Reykjanesbæ, en þar eru verð á atvinnuhúsnæði og launakostnaður mun lægri en á höfuðborgarsvæðinu. Þar njóta fyrirtæki meira rýmis og lægri leigu, en hafa samt góðan markaðsaðgang að höfuðborgarsvæðinu. Gróska í atvinnulífi mun aukast á þessum stöðum í kjölfarið. Þetta eru helstu niðurstöður lokaverkefnis Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur í hagfræði við Háskóla Íslands, þar sem fjallað er um staðarval fyrirtækja og þróun atvinnulífs á suðvesturhorni landsins.
(Smellið á myndina)
Súliritið sýnir vegið meðaltalsverð á hvern m2 atvinnuhúsnæðis eftir stöðum á tímabilinu 1995-2001, byggt á gögnum frá Fasteignamati ríkisins. Fyrirvara má gera við raunverulegt framboð annars vegar, og við hugsanlegar breytingar á síðustu misserum hins vegar, t.d. á Akranesi eftir opnun Hvalfjarðarganga.
"Fráhrindikraftar" borgarsamfélagsins
Svonefndir fráhrindikraftar borgarsamfélagsins virðast vera farnir
að gera vart við sig á höfuðborgarsvæðinu, að því er fram kemur í
ritgerðinni. Þeir koma til að mynda fram í háu fasteignaverði, háum
launakostnaði og miklum umferðarþunga. Að mati höfundar eru því
ýmis teikn á lofti um að hin nýju vaxtarsvæði framleiðslufyrirtækja
verði í ca. 30-60 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu
frekar en á því sjálfu. Ef flutningskostnaður og markaðsnánd eru
tekin með í reikninginn bendir hins vegar margt til þess að
staðsetning fyrirtækja sé hagkvæmari í nærliggjandi sveitarfélögum
höfuðborgarsvæðisins en á fjarlægari stöðum þar sem verð á
atvinnuhúsnæði er enn lægra.
Jaðarhringur höfuðborgarsvæðisins

Myndin sýnir að atvinnuhúsnæði sem staðsett er í 45-74 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu er u.þ.b. helmingi ódýrara en á höfuðborgarsvæðinu. Sparnaður, í formi lægra fasteignaverðs, sem hlýst af því að staðsetja fyrirtæki þar er því gífurlegur. Flutningskostnaður fyrirtækja sem staðsetja sig á þessum krans er e.t.v. hærri en þeirra fyrirtækja sem staðsetja sig á höfuðborgarsvæðinu en það fer þó allt eftir eðli framleiðslunnar.
Aðskilnaður framleiðslusviðs og höfuðstöðva
Að mati höfundar kann að vera kominn tími fyrir breytt
fyrirkomulag á starfsemi margra framleiðslufyrirtækja. Aðskilnaður
framleiðslusviðs og höfuðstöðva getur í mörgum tilfellum reynst
hagkvæmari en samþætt starfsemi á einum stað. Í nærliggjandi
sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins njóta framleiðslufyrirtæki góðs
af lægri launakostnaði og lægra verði á atvinnuhúsnæði. Flutningur
framleiðslusviðs slíkra fyrirtækja til þessara svæða gæti í mörgum
tilfellum skilað sér í aukinni arðsemi. Vegna mikilla framfara í
fjarskiptatækni og samgöngubótum getur aðskilnaður höfuðstöðva og
framleiðslusviðs fyrirtækjanna reynst hagkvæmari en þegar öll
starfsemin fer fram á sama stað. Kostnaður við vöru- og
fólksflutninga hefur lækkað verulega á seinni árum og tilkoma
Netsins og ýmissa fjarskiptatækja hefur lækkað samskiptakostnað
fyrirtækjanna svo um munar.
Nánar um verkefnið
Ritgerðin er lokaverkefni Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur til
BA-prófs í hagfræði við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands. Verkefnið var unnið með stuðningi Samtaka atvinnulífsins
og Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Leiðbeinandi var Ásgeir Jónsson,
hagfræðingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er
fjallað um staðarval fyrirtækja og þróun atvinnulífs á
suðvesturhorni Íslands. Kenningar um hagkvæmustu staðsetningu
fyrirtækja eru skoðaðar og bornar saman við íslenskar aðstæður.
Nálægð við markaðinn og eftirspurnin á honum hefur samkvæmt þeim
mest áhrif á staðarval fyrirtækja. Markaðsstaða, svæðisbundnir
skattar, verð á atvinnuhúsnæði og launakostnaður hafa einnig mikil
áhrif.
