Vörugjöldum mótmælt
Könnun SVÞ á áhrifum vörugjalds og virðisaukaskatts á verðlag
leiðir í ljós að verð á matvælum og rafmagns-tækjum er mun hærra
hér á landi en í Svíþjóð vegna þessara gjalda. Smásöluverð á
appelsínusafa er til dæmis 44% hærra hér á landi en í Svíþjóð og
sjónvörp eru 24% dýrari hér vegna álagðra vörugjalda og
virðisaukaskatts. Sjá nánar
á vef SVÞ.