Vinnumarkaður að róast
Samkvæmt könnun Samtaka atvinnulífsins ætla fyrirtæki að fækka starfsfólki um tæpt hálft prósent næstu tvo til þrjá mánuði. Í bili virðist sem þenslunni sé lokið á vinnumarkaði höfuðborgarsvæðisins. Eftirspurnin eykst hins vegar á landsbyggðinni.
Um miðjan desember voru um tólf hundruð fyrirtæki í Samtökum atvinnulífsins spurð í netpósti hvort þau hygðust fjölga starfsfólki eða fækka á komandi 2-3 mánuðum. Tekið var fram að lausráðningar væru ekki taldar með. Alls bárust svör frá 422 fyrirtækjum, eða ríflega 30% þeirra sem fyrirspurnina fengu. Þar af hyggjast 58 bæta við starfsmönnum, 72 ætla að fækka fólki og 283 ætla að hafa jafn marga í vinnu og áður.
Eins og í fyrri könnunum vega fyrirtæki með færri en 60 starfsmenn fjórfalt á við stærri fyrirtæki stór fyrirtæki eru með mun betri svörun en lítil).
Þenslunni lokið á höfuðborgarsvæðinu
Nú hyggjast fyrirtæki sem starfa á höfuðborgarsvæðinu eða landinu
öllu fækka starfsmönnum um rúmt prósent en fyrirtæki á
landsbyggðinni hyggjast fjölga starfsmönnum um hálft prósent. Fyrir
ári var þessu öfugt farið, fyrirtæki á landsbyggðinni hugðust fækka
starfsfólki en mikil þensla var á höfuðborgarsvæðinu. Mörgum
stórframkvæmdum er að ljúka á höfuðborgarsvæðinu, en lækkun
krónunnar og kvótaaukning eru líkast til meginskýringarnar á því að
sóst er eftir starfsfólki í fiskvinnslu um þessar mundir.
Samdráttur frá fyrra ári
Að meðaltali hyggjast fyrirtæki samkvæmt könnuninni fækka
starfsfólki um tæplega hálft prósent. Þetta er talsverð breyting
frá því fyrir ári síðan, þegar niðurstaða sams konar könnunar var
sú að fyrirtæki hygðust fjölga starfsfólki um 0,3%.
Mörg lítil fyrirtæki hyggjast fjölga
fólki
Athygli vekur að fyrirtæki með 10 starfsmenn og færri hyggjast
fjölga starfsmönnum, en stærri fyrirtæki hyggjast fækka
fólki. Svipað kom út úr sambærilegri könnun sem gerð var í
júní. Á þessu gætu verið ýmsar skýringar, en þess má geta að
erlendar athuganir benda til þess að hagsveiflur (hér: samdráttur)
komi fyrr fram hjá stórum fyrirtækjum en litlum.
Ólíkar horfur eftir greinum
Fyrirtæki í fiskvinnslu (SF) hyggjast nú fjölga starfsmönnum um
2-2,5% og fjármálafyrirtæki (SFF) um rúm 1,5%. Þá hyggjast
útgerðarfyrirtæki fjölga starfsmönnum um tæpt hálft prósent, en
annars staðar hyggjast menn fækka fólki. Rafverktakar (SART) og
fyrirtæki í verslun og þjónustu (SVÞ) og í iðnaði (SI) hyggjast
fækka starfsfólki um u.þ.b. 1,5%, en í ferðaþjónustu (SAF) er
samdrátturinn minni.

