Vinnumálastofnun spáir um 3% atvinnuleysi 2004
Meðalatvinnuleysi á árinu 2003 var 3,4% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði. Vinnumálastofnun telur líkur á að atvinnuleysi verði
nokkru minna á árinu sem er að hefjast en á því síðasta, og verði
að meðaltali um eða lítið eitt hærra en 3%. Sjá nánar á
vef Vinnumálastofnunar.