Vinnumálastofnun spáir 3,5-3,9% atvinnuleysi
Í desembermánuði síðastliðnum voru skráðir 98.578 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.483 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði, samkvæmt skýrslu Vinnumálastofnunar. Meðalfjöldi atvinnulausra var um 10% meiri í desember en í nóvember en er um 2/3 meiri en í desember árið 2001. Síðustu 10 ár hefur fjöldi atvinnulausra aukist að meðaltali um 23,4% frá nóvember til desember. Þess má geta að í dag eru 5.644 á atvinnuleysisskrá, þar af 2.990 karlar og 2.654 konur, sbr. heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Spáir 3,5-3,9% atvinnuleysi í janúar
Atvinnuástandið versnar iðulega í janúar miðað við desember.
Undanfarin 10 ár hefur fjöldi atvinnulausra aukist að meðaltali um
13% frá desember til janúar. Atvinnuleysið var 2,4% í janúar í
fyrra. Fjöldi atvinnulausra jókst að meðaltali um 22,1% milli
desember 2001 og janúar 2002. Atvinnulausum í lok desember hefur
fjölgað um 489 miðað við lok nóvember. Lausum störfum í lok
desembermánaðar hefur fækkað um 27 miðað við nóvemberlok. Líklegt
er að atvinnuleysið í janúar aukist talsvert vegna almenns
samdráttar og minna framboðs á vinnuafli og verði á bilinu 3,5% til
3,9%, segir í skýrslunni.