Vika símenntunar haldin í annað sinn

Vika símenntunar, sem haldin er á vegum menntamála-ráðuneytisins, verður haldin í annað sinn hér á landi dagana 3.-9. september nk., og sér MENNT um skipulagningu og framkvæmd vikunnar í  samvinnu við símenntunarmiðstöðvar víða um land. Þema Viku símenntunar að þessu sinni verður Ísland og umheimurinn - tungumál og tölvukunnátta.  Markhópur hennar eru allir þeir sem vilja bæta við sig þekkingu í tungumálum og tölvukunnáttu hvort sem hún á að nýtast í atvinnulífinu, tómstundum, á ferðalögum eða í samskiptum almennt. Auk þess verður lögð áhersla á almenna hvatningu og kynningu á mikilvægi símenntunar. Í nútíma samfélagi upplýsinga-, fjarskipta- og stafrænna tækja þar sem örar tækniframfarir og alþjóðavæðing efnahagslífsins á sér stað verður sífellt mikilvægara fyrir fyrirtæki og starfsmenn þeirra að halda við menntun sinni og þekkingu til að vera samkeppnishæf á markaði. 

Málþing á Hótel Loftleiðum  5. september 2001
Einn liður í  Viku símenntunar verður málþing sem ber yfirskriftina "Ísland og umheimurinn - tungumál og tölvukunnátta"  Hver er framtíðin - hvert stefnir?
Meðal fyrirlesara verða, auk Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra: Páll Kr. Pálsson forstjóri 3p Fjárhús, Eyþór Eðvarðsson IMG, Guðrún Magnúsdóttir forstjóri ESTeam AB, Arthúr Björgvin Bollason Sögusetrinu á Hvolsvelli og Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri.

Frekari upplýsingar um Símenntunardaginn 6. september, fræðsluhátíð í Kringlunni 8. september og margt fleira er að finna á vefsíðu Viku símenntunar.