Vika símenntunar 3.-9. september
Vika símenntunar, er haldin á vegum menntamálaráðuneytisins dagana 3.-9. september, og sér MENNT um skipulagningu og framkvæmd vikunnar í samvinnu við símenntunarmiðstöðvar víða um land. Þema Viku símenntunar að þessu sinni er Ísland og umheimurinn - tungumál og tölvukunnátta. Markhópur hennar eru allir þeir sem vilja bæta við sig þekkingu í tungumálum og tölvukunnáttu hvort sem hún á að nýtast í atvinnulífinu, tómstundum, á ferðalögum eða í samskiptum almennt. Auk þess er lögð áhersla á almenna hvatningu og kynningu á mikilvægi símenntunar.
Málþing á
Hótel Loftleiðum 5. september
2001
Einn
liður í Viku símenntunar er málþing sem ber
yfirskriftina "Ísland og umheimurinn - tungumál og
tölvukunnátta" Hver er framtíðin - hvert stefnir?
Meðal fyrirlesara verða, auk Björns Bjarnasonar
menntamálaráðherra: Páll Kr. Pálsson forstjóri 3p Fjárhús, Eyþór
Eðvarðsson IMG, Guðrún Magnúsdóttir forstjóri ESTeam AB, Arthúr
Björgvin Bollason Sögusetrinu á Hvolsvelli og Þorsteinn Gunnarsson
rektor Háskólans á Akureyri.
Frekari upplýsingar um Símenntunardaginn 6. september, fræðsluhátíð í Kringlunni 8. september og margt fleira er að finna á vefsíðu Viku Símenntunar.