Viðsnúningur á vinnumarkaði
Allur þorri fyrirtækja hyggst halda óbreyttum fjölda starfsfólks næstu þrjá til fjóra mánuði, eða 77%, samkvæmt niðurstöðum könnunar Samtaka atvinnulífsins sem gerð var í júní. 13% fyrirtækja hyggjast fjölga starfsfólki en 10% hyggjast fækka því. Þetta er töluverður viðsnúningur frá síðustu ráðningaráformakönnun SA sem gerð var í desember 2002, en þá hugðist 21% fyrirtækja fækka starfsfólki en 8% hugðust fjölga því.

Fækkun starfsfólks í sjávarútvegi og
fjármálaþjónustu
Mikill munur er á svörum fyrirtækja eftir atvinnugreinum, en
prósentutölur um mismun milli greina og starfssvæða eru þó einungis
til grófrar viðmiðunar, sbr. fyrirvara hér að neðan. Þannig
hyggjast fyrirtæki í fiskvinnslu (SF) og útgerð (LÍÚ) fækka
starfsfólki um 2,8 og 2,4% og fjármálafyrirtæki (SFF) um 1,7%. Hins
vegar hyggjast fyrirtæki í iðnaði (SI) og ferðaþjónustu (SAF)
fjölga starfsfólki um 0,9%, í verslun og þjónustu um 0,4% (SVÞ) og
rafverktakar (SART) um 0,3%.

Fjölgun framundan á höfuðborgarsvæðinu
Loks hyggjast fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu fjölga starfsfólki um
0,8 % að meðaltali, en fyrirtæki á landsbyggðinni og þau sem hafa
allt landið sem starfssvæði hyggjast fækka starfsfólki örlítið, eða
u.þ.b. 0,1%.
Fyrirvari við hlutfallstölur
Færri fyrirtæki gáfu upplýsingar um hve mörgum starfsmönnum þau
hyggjast bæta við eða fækka um en í síðustu könnun. Prósentutölur
um þróun í einstökum greinum og á einstökum starfssvæðum, sem
byggðar eru á fjöldatölunum, eru því eingöngu grófar viðmiðanir um
þróunina framundan. Í janúar sl. var sagt frá því að fyrirtæki
hygðust að meðaltali fækka starfsfólki um 1,55%, skv. könnun SA.
Þar sem færri fyrirtæki gáfu nú upp hversu mörgu starfsfólki þau
hygðust bæta við eða fækka um er ekki nægileg forsenda fyrir slíkum
heildarsamanburði að þessu sinni. Ljóst er þó að mikil breyting
hefur orðið þarna á og að jafnvægi ríkir nú á vinnumarkaði
eftir stutt tímabil slaka í kjölfar þenslu á árabilinu
1997-2001.
Um könnunina
Könnunin var gerð í júní 2003. Spurningar voru sendar til 1.039
aðildarfyrirtækja SA og svör bárust frá 585, eða 56,3%.