Viðauki við kjarasamning Flóabandalagsins
Samkomulagið felur í sér nokkrar breytingar á kjarasamningum
Flóafélaganna. Orlof eftir 10 ára samfellt starf fer úr 27 dögum í
28, eins og í vel flestum kjarasamningum SA, veikindi í orlofi
erlendis eru viðurkennd að uppfylltum skilyrðum, veikindagreiðslur
í langvarandi veikindum aukast, hugtökin "staðgengilskaup" og
"óvinnufærni" eru nánar skilgreind, dánar-, slysa- og örorkubætur
hækka og gerðar voru breytingar á kafla kjarasamninga um
fyrirtækjaþátt.
Samkomulagið í heild: