Við höfum göngin til góðs
Hvalfjarðargöng eru mjög vel heppnuð einkaframkvæmd. Lærdómurinn er sá að það á að nýta markaðslausnir við uppbyggingu og rekstur vegakerfisins. Nýlegar fréttir herma að Spölur muni hætta að innheimta veggjald í Hvalfjarðargöng í sumar. Um svipað leyti mun fyrirtækið afhenda ríkinu göngin til eignar. Þá verða liðin 20 ár frá opnun ganganna. Rekstur ganganna gekk vonum framar og að allt stóðst sem að var stefnt. Brýn uppbygging vegakerfisins mun hins vegar ekki verða að veruleika á næstu árum nema að til komi ný hugsun og nýjar fjármögnunarleiðir. Sporin heilla í þeim efnum. Því ber að nýta kosti markaðsaflanna við uppbyggingu og reksturs vegakerfisins eins og gert var með Hvalfjarðagöngum.
Margar brýnar og kostnaðarsamar framkvæmdir verða ekki fjármagnaðar af almennu ríkisfé á næstu árum.
Meiri einkaframkvæmd
Gerð og rekstur Hvalfjarðargangna er dæmi um velheppnaða einkaframkvæmd í samgöngum. Samið var við einkafyrirtækið Spöl um gerð, rekstur og fjármögnun ganganna á grundvelli verkáætlunar þar sem gert var ráð fyrir að veggjöld myndu greiða framkvæmdar- og rekstrarkostnað á 20 árum. Umferðin hefur verið mun meiri heldur en gert var ráð fyrir en á móti hefur veggjaldið lækkað jafnt og þétt samanborið við verðlag.
Í upphafi var gert ráð fyrir að hluti ökumanna kysi að fara fyrir Hvalfjörð. Sú hefur ekki verið raunin. Þeir sem fara fyrir Hvalfjörð gera það sér til yndisauka en ekki af sparnaðarástæðum. Um 7.000 bílar aka á degi hverjum um Hvalfjarðargöng á ári að meðaltali og sú tala fer yfir sumartímann í hátt í 10 þúsund bíla.
Rétt forgangsröðun
Fátt bendir til annars en að umferð á höfuðvegum aukist umtalsvert á næstu árum. Einungis hluti tekna ríkissjóðs af ökutækjum rennur til Vegagerðarinnar sem annast rekstur og uppbyggingu vegakerfisins.
Í tilviki Hvalfjarðaganga hafa hins vegar allir fjármunir sem notendur ganganna hafa innt af hendi runnið í fjármögnun ganganna. Til þess var leikurinn gerður. Framkvæmdir í vegakerfinu eru hins vegar fjármagnaðir af almennum skatttekjum ólíkt því sem áður var.
Fjöldi tækifæra til innviðauppbyggingar
Við ríkisvæðum okkur ekki út úr áskorunum framtíðar. Margar brýnar og kostnaðarsamar framkvæmdir verða ekki fjármagnaðar af almennu ríkisfé á næstu árum. Innviðir munu áfram gjalda fyrir hræðslu stjórnmálamanna til að nýta markaðsöflin og allir tapa. Mikilvæg verkefni á sviði heilbrigðis, menntunar og félagsþjónustu, svo dæmi sé tekið, munu knýja á um hlutdeild í hugsanlegum auknum tekjum ríkissjóðs á komandi árum. Kröfur á ríkissjóð til góðra verka vaxa frá ári til árs.
Grunnhugsunin við einkaframkvæmd er að skapa aukinn hvata fyrir framkvæmdaaðila til að skila af sér fullbúnu verki, með lágmarkstilkostnaði og með tilliti til þess að viðhaldskostnaði sé haldið í lágmarki á rekstrartímanum. Hagræði næst fram með því að tvinna saman hagsmuni framkvæmdar- og rekstraraðilans. Kostnaður við rekstur vegarins fellur á rekstraraðilana á samningstímanum öfugt við hefðbundnar vegaframkvæmdir, þar sem framkvæmdaaðili er jafnan laus flestra mála við afhendingu.
Gerum kröfur
Heppilegt fyrirkomulag við einkaframkvæmdir er að útgjöldum vegna framkvæmdar er jafnað yfir líftíma eignarinnar í stað þess að allur kostnaður sé gjaldfærður í upphafi eins og annars er gert. Einkaaðilar geta að jafnaði tryggt sér hagstæðari lánakjör í gegnum einkaframkvæmd en ella, þar sem lánveitandi er í raun að lána einkaaðila út á veð í fyrirfram ákveðnu fjárstreymi. Þannig fjármagnaði Spölur Hvalfjarðargöng án ríkisábyrgðar, öfugt við það sem oft er haldið fram í almennri umræðu. Betur má ef duga skal, einkaframkvæmd er kall og svar tímans.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Greinin birtist í Markaðnum 10. janúar 2018.