Verðbólgan ræðst af niðurstöðu kjarasamninga

Af nýlegum hagspám má ráða fullkomna vantrú á skynsamlega niðurstöðu kjarasamninga í vetur. Í nýendurskoðaðri þjóðhagsspá Seðlabanka virðist gert ráð fyrir u.þ.b. 5,5% meðaltals launahækkunum á ári næstu tvö árin. Bankinn segir þessar launabreytingar nokkuð umfram það sem samrýmist verðbólgumarkmiðinu, 2,5%, og fyrir vikið muni það ekki nást fyrr en á fyrri hluta ársins 2016, í stað þess að nást á næsta ári eins og í síðustu spá bankans fyrir aðeins þremur mánuðum síðan. Verði launabreytingar hins vegar í takti við það sem samræmist verðbólgumarkmiðinu muni verðbólga verða minni og vextir lægri en ella.

Hagstofan gerir ráð fyrir svipaðri launabreytingu á milli ára, um 5,5%, og að verðbólga verði áfram í kringum 4%. Sama er uppi á teningunum hjá greingardeild Íslandsbanka og verðbólguvæntingar á verðbréfamarkaði og meðal fyrirtækja eru svipaðar eða á bilinu 4,0-4,5% á komandi tveimur árum. Verðbólguvæntingar heimilanna eru enn meiri, eða 5%.

Ljóst er því að ofangreindir aðilar hafa enga trú á að umræða að undanförnu um breytt vinnubrögð við gerð kjarasamninga muni skila sér í skynsamlegri niðurstöðu komandi kjaraviðræðna.

Lái þeim hver sem vill. Á undanförnum áratug hafa laun hér á landi hækkað að jafnaði um tæp 7% á ári, langt umfram það sem samrýmist verðstöðugleika. Á Norðurlöndunum nemur sambærileg hækkun um 3,5% á ári að jafnaði. Að sama skapi hefur verðbólgan hér verið að meðaltali liðlega 6% á undanförnum áratug samanborið við 1,8% að meðaltali á Norðurlöndunum. Kaupmáttaraukning þar varð 18% samanborið við tæp 4% hér á landi. Árangur Íslendinga er því slakur sama hvernig á það er litið.

Vera kann að spámennirnir muni hafa rétt fyrir sér þegar upp er staðið. Þeir spá því einfaldlega að samningsaðilar á vinnumarkaði leysi sín mál með sama hætti og áður. Þeir ganga út frá því að samið verði um háar prósentuhækkanir launa, sem eru langt umfram heildarhækkanir launa í öllum samkeppnisríkjum og langt umfram það sem samræmist markmiði um verðstöðugleika. Verði sú leið farin enn einu sinni verða samningarnir ekki gerðir á grundvelli þess hvað kemur þjóðfélaginu og heimilunum best til lengri tíma en það er lág verðbólga og lágir vextir. Við stöðugleika er miklu meiri von um að Íslendingar komist upp úr öldudalnum og fjárfestingar og atvinnusköpun komist á fulla ferð heldur en í  verðbólgu og háum vöxtum eins og undanfarin ár.

Almenn vantrú á farsæla lausn kjaraviðræðna ætti að vera aðilum vinnumarkaðar hvatning til ábyrgrar nálgunar í komandi viðræðum. Verði það ekki munum við gjalda fyrir með hærra vaxtastigi, hækkandi höfuðstól verðtryggðra lána heimila og fyrirtækja og áframhaldandi stöðnun, doða og framtaksleysi í atvinnulífinu. Á því þurfum við ekki að halda við núverandi aðstæður.

Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 24. ágúst 2013.