Útspil Ögmundar
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB og þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði í morgunfréttum útvarps þann 3. apríl að skynsemin mætti ekki gleymast í baráttu manna fyrir að verðbólgan yrði undir rauða strikinu svokallaða. Ástandið væri sumpart farið að minna á þá vísitöluleikfimi sem var stunduð hér í kringum 1980, þegar menn hengu í hitamælinum en gleymdu hitastiginu í herberginu.
Léleg samlíking við 1980
Samlíking við ástand verðlagsmála fyrir tveimur áratugum
er ekki sérlega vel til fundin og fátt sameiginlegt nú og
þá. Á þeim tíma geisaði 50% verðbólga á landinu og laun
hækkuðu sjálfvirkt um 10-15% á þriggja mánaða fresti til samræmis
við verðbólguna. Verðlagsvísitalan var mæld á þriggja mánaða
fresti með mun ófullkomnari aðferðum er nú er beitt. Aðferðir
Hagstofunnar við mælingar á vísitölu neysluverðs einkennast af
fagmennsku og sjálfstæði stofnunarinnar gagnvart stjórnvöldum og
hagsmunaaðilum er hafið yfir allan vafa.
Desembersamningur SA og ASÍ
Í desember síðastliðnum sömdu SA og ASÍ um tilteknar
breytingar á kjarasamningum. Breytingarnar eru í meginatriðum
þær að ef vísitala neysluverðs verður hærri en 222,5 í mælingunni
sem fram fer fyrstu dagan í maí og birt verður 14. maí nk., þá er
einstökum stéttarfélögum heimilt að segja upp kjarasamningum sínum
og verða þeir þá lausir frá 1. september. Vísitalan er nú
221,8 og er því aðeins 0,3% frá strikinu. Ef rauða strikið
heldur þá munu tilteknar breytingar verða á lífeyrisframlögum
vinnuveitenda í júlí og launahækkun um næstu áramót verður 0,4%
hærri en ella. Í kjarasamningum BSRB eru ákvæði
sem fela í sér að samningar BSRB eru lausir ef samningar losna á
almennum markaði og ef um breytingar semjist á almennum markaði þá
muni þær teknar til skoðunar.
Forsendur jafnvægis
Gildandi kjarasamningar hafa það bæði sem forsendu og markmið að
verðbólga náist niður á svipað stig og í okkar nágranna- og
viðskiptalöndum. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld
hafa með samkomulagi sínu í desember sl. og samstarfi síðan lagt
allt kapp á að það markmið náist sem fyrst. Samstarfið
hefur tvímælalaust átt þátt í þeim árangri að gengi krónunnar hefur
styrkst verulega frá því í byrjun desember og verðbólgan fer hratt
minnkandi. Ef samningum verður ekki sagt upp standa allar
líkur til þess að við munum ná markmiðinu um svipaða verðbólgu og í
viðskiptalöndunum þegar á þessu ári. Rætur verðbólgu og
gengislækkana, spennan í hagkerfinu og viðskiptahallinn eru á
undanhaldi, og forsendur jafnvægis hafa skapast á
ný.
Tilgangur Ögmundar
Útspil formanns BSRB er ekki athugasemd frá hlutlausum áhorfanda
úti í bæ. Hún er þvert á móti yfirlýsing af hálfu
forystumanns stærstu heildarsamtaka opinberra starfsmanna sem er
til þess fallin að varpa rýrð á hið þríhliða samstarf sem tekist
hefur milli ASÍ, SA og stjórnvalda um framgang uppsettra
markmiða. Þetta útspil nú minnir hins vegar á þann fleyg sem
rekinn var í þríhliða samstarf aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda
að sameiginlegum markmiðum í febrúar árið 1991. Þá komst sú
launanefnd sem starfaði á grundvelli samninga á almennum
vinnumarkaði að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til sérstakra
aðgerða af hennar hálfu, enda hefðu forsendur kjarasamninga
staðist. Launanefndir sem störfuðuð á grundvelli samninga
opinberra starfsmanna, með Ögmund Jónasson í broddi fylkingar,
komust hins vegar að allt annarri niðurstöðu sem leiddi til meiri
kauphækkana og verðbólgu en ella hefði orðið.
Mikilvægi friðar á vinnumarkaði
Mesta ógnunin við það að verðbólgan verði svipuð og í nálægum
löndum á næstu misserum og árum eru lausir samningar og átök á
vinnumarkaði. Ef það gerist er næsta víst að styrking krónunnar
gangi til baka og glíman við verðbólguna muni dragast á
langinn.
Hannes G. Sigurðsson