Upplýsingafundur fyrir félagsmenn um ráðningarstyrk
Samtök atvinnulífsins efna til upplýsingafundar fyrir félagsmenn um ráðningarstyrk, í samvinnu við Vinnumálastofnun og félagsmálaráðuneytið í dag kl. 13:00. Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra mun kynna átakið Hefjum störf og sérfræðingar Samtaka atvinnulífsins og Vinnumálastofnunar fara nánar yfir úrræðin og sitja fyrir svörum.
Skráning fer fram hér:
Upplýsingar um ráðningarstyrk á heimasíðu Vinnumálastofnunar
Reglugerð um greiðslu styrkja úr atvinnuleysistryggingasjóði o.fl. (11. gr.)