Umhverfisviðurkenning - beiðni um tilnefningar (2)
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki til að hljóta "Kuðunginn" - umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins - fyrir árið 2005. Tilnefningar berist eigi síðar en 25. mars, með stuttri greinargerð.
Þau fyrirtæki sem fram til þessa hafa hlotið umhverfisviðurkenningu
umhverfisráðuneytisins eru:
1994 Gámaþjónustan hf., Kjötumboðið Goði hf. og
Umbúðamiðstöðin hf.
1995 Prentsmiðja Morgunblaðsins
1996 Fiskvinnsla KEA í Hrísey
1997 Olíufélagið hf.
1998 Haraldur Böðvarsson hf.
1999 Borgarplast hf
2000 Ísal
2002 Árvakur hf.
2003 Hópbílar hf.
2004 Orkuveita Reykjavíkur
Tillögur skulu hafa borist umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, eigi síðar en 25. mars nk., merktar "Kuðungurinn 2005," eða með tölvupósti til postur@umhverfisraduneyti.is.