Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019 – óskað eftir tilnefningum

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019 verða afhent miðvikudaginn 9. október fyrirtækjum sem staðið hafa sig vel í umhverfismálum. Athöfnin fer fram í Hörpu á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhendir verðlaunin.

Óskað er eftir tilnefningum fyrir 7. september nk. með tölvupósti á sa@sa.is merktum: „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“.

Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað. Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:

Umhverfisfyrirtæki ársins

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
  • Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
  • Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
  • Innra umhverfi er öruggt
  • Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið

Framtak ársins

  • Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
  • Hefur komið fram með nýjung – vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Toyota var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2018


Framtak ársins 2018 á sviði umhverfismála á Skinney-Þinganes.

Sjá nánar hér

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru fyrst afhent árið 2015. Þá fékk Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki umhverfisverðlaunin og Orka náttúrunnar fékk viðurkenningu fyrir framtak ársins. Árið 2017 fengu Icelandair hótel umhverfisverðlaunin og Landsnet fékk viðurkenningu fyrir framtak ársins. Verðlaunin verða veitt í fjórða sinn þann 9. október.

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2019 - dagskrá og skráning