Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2018 - frestur rennur út í dag
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins verða afhent miðvikudaginn 17. október fyrirtækjum sem staðið hafa sig vel í umhverfismálum. Athöfnin fer fram í Hörpu á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin.
Óskað er eftir tilnefningum fyrir 14. september með tölvupósti á sa@sa.is merktum: „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður
umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað.
Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:
Umhverfisfyrirtæki ársins
- Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
- Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
- Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
- Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
- Innra umhverfi er öruggt
- Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
- Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á umhverfið
Framtak ársins
- Hefur komið fram með nýjung – nýja vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif
- Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
- Gagnast í baráttu við loftslagsbreytingar
Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Icelandair hótel voru valin umhverfisfyrirtæki ársins 2017
Landsnet átti framtak ársins á sviði loftslagsmála 2017 fyrir snjallnet á Austurlandi.
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru fyrst afhent árið 2015. Þá fékk Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki umhverfisverðlaunin og Orka náttúrunnar fékk viðurkenningu fyrir framtak ársins. Þetta verður því í þriðja sinn sem verðlaunin verða veitt.