Umfjöllun SA um útgjöld heilbrigðisstofnana leiðrétt
Heilbrigðis- og tryggingaráðherra hefur gert athugasemdir við umfjöllun Samtaka atvinnulífsins um framúrkeyrslu heilbrigðisstofnana á fjárlögum, á árunum 1998 til 2002. Ákveðin atriði í gagnrýni ráðherra áttu rétt á sér og hefur umfjöllun SA verið lagfærð með hliðsjón af því. Þar er fyrst og fremst um að ræða meðhöndlun sértekna á árunum 2001 og 2002, en gagnrýnin um meðhöndlun sértekna á ekki við um fyrri árin í samanburðinum.
Ástæðan fyrir þessum ruglingi varðandi sértekjur er breytt framsetning ríkisreiknings. Sá gjaldaliður sem er til umfjöllunar nefndist áður því skýra nafni "gjöld umfram sértekjur" en heitir eftir breytingu "tekjur umfram gjöld" og er birtur sem mínustala þegar gjöld eru hærri en sértekjur. Í staðinn var við umfjöllun notuð tala sem nú heitir "gjöld samtals", sem eru heildargjöld áður en sértekjur hafa verið dregnar frá. Þetta hefur þau áhrif á niðurstöðu greiningar SA að sá tæpi helmingur heilbrigðisstofnana sem sagður var fara að meðaltali 26,3% framúr fjárlögum, fer samkvæmt nýjum útreikningi 21,2% framúr á því fimm ára tímabili sem til skoðunar er. Meginstef umfjöllunar SA stendur því óhaggað.
Þar sem landlæknisembættið var nefnt sérstaklega í upphaflegri umfjöllun SA þá er rétt að taka fram að það kemst ekki inn á listann yfir hraðakstursstofnanir í endurskoðaðri umfjöllun vegna þess að árið 2001 voru gjöld skv. ríkisreikningi lægri en niðurstaða fjárlaga. Fjárhagur embættisins var bættur verulega með aukningu sértekna úr 3,7 m.kr. árið 2000 í 23 m.kr. árið 2001. Það má þó telja einstakt frávik þar sem stofnunin fór verulega fram úr fjárlögum árin 1998-2000 og um 35% að meðaltali öll árin fimm.
Millifærslur og verðlagsbreytingar
Þá var gagnrýnt að ekki væri tekið tillit til millifærslna milli
fjárlagaliða á fjárlögum né til verðlagsbreytinga sem fjárlög gerðu
ráð fyrir. Það er rétt að tilfærslur verkefna milli stofnana geta
haft áhrif á samanburðinum einstök ár en þær geta ekki skýrt
stöðuga framúrkeyrslu tuga stofnana ár eftir ár. Það er hins vegar
misskilningur að ekki sé tekið tillit til verðlagsbreytinga. Við
skilgreiningu á hraðakstursstofnunum var þeirri aðferð beitt að
heimila stofnunum tiltekinn framúrakstur umfram forsendur fjárlaga
hvers árs. Nánar til tekið þá töldust stofnanir ekki hafa farið
fram úr fjárlögum ef gjöldin voru 3,0% hærri en fjárlög árið 1998,
2,0% hærri árið 1999, 3,4% árið 2000, 6,8% árið 2001 og 3,0% árið
2002. Eru tölur þessar einkum byggðar á hækkunum launa
ríkisstarfsmanna umfram forsendur fjárlaga hvers árs.
Heimildir stofnana til að stofna til
útgjalda
Ennfremur var gagnrýnt að ekki væri tekið tillit til heimilda
stofnana til að stofna til útgjalda á tilteknu ári vegna ónotaðra
heimilda. Þessi athugasemd á heldur ekki við því ef stofnun hefur
ekki nýtt upphaflegar fjárheimildir sínar skv. fjárlögum eitthvert
ár, og þannig verið undir gjaldaramma fjárlaga, þá hefði sú stofnun
ekki komist inn á fyrrnefndan lista yfir hraðakstursstofnanir, þar
sem horft er til fimm ára.
Heimildir á fjáraukalögum
Loks kom fram í gagnrýninni að í athugun SA væri ekki gert ráð
fyrir heimildum á fjáraukalögum. Þetta er hins vegar allt önnur
umræða. Kjarninn í umfjöllun SA er hvernig þær áætlanir standast
sem liggja fyrir við gerð fjárlaga ríkisins. Það er gagnrýnt að ár
eftir ár skuli niðurstaða ríkisreiknings vera víðs fjarri þeim
ramma sem fjárlög ákveða einungis 1-13 mánuðum áður. Í umfjöllun SA
var því aldrei haldið fram að öll framúrkeyrsla frá fjárlögum væri
án heimilda þegar upp væri staðið. Einungis voru borin saman
fjárlög og ríkisreikningur og breyta fjáraukalögin, sem afgreidd
eru um ári síðar en fjárlögin, engu um niðurstöður á samanburði
fjárlaga og ríkisreiknings, þ.e. upphaflegs fjárhagsramma og
endanlegrar niðurstöðu rúmu ári síðar. Það er umfjöllunarefni
greinar SA. Viðbótarupplýsingum um þetta atriði var þó raunar strax
bætt við umfjöllun SA, þegar þessi misskilningur gerði vart við
sig.
Meginstef umfjöllunar SA stendur óhaggað
Að lokum er rétt að ítreka að meginstef umfjöllunar SA stendur
óhaggað. Um helmingur heilbrigðisstofnana fór á fimm ára tímabili
að meðaltali 21,2% fram úr fjárlögum. Eins og áður er þar átt við
fjárlög eins og þau eru samþykkt frá Alþingi, en ekki endanlegar
fjárheimildir eftir viðbætur sem ákveðnar eru síðar. Að mati SA
eiga raunhæfar áætlanir og ákvarðanir um verkefni og forgang að
liggja til grundvallar fjárlögum. Heilbrigðismálin eru veikasti
hlekkurinn í fjármálastjórn ríkisins og þar verður að finna betri
leiðir en nú tíðkast til að treysta framkvæmd fjárlaga í sessi.