Þríhliða viðræður?
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í
Fréttablaðinu í dag að viðbúið sé að aðilar vinnumarkaðarins og
stjórnvöld fari í samstarf um þríhliða viðræður um hvaða leiðir
geti verið fyrir hendi til að forða því að launalið kjarasamninga
verði sagt upp á næsta ári. Hann bendir þó á að þetta sé flókið mál
þar sem engar skyndilausnir séu fyrir hendi, en telur að allir
vilji sameinast um það að verðbólgan fari aftur niður á þolanlegt
stig. Hannes segir að hækkun verðbólgunnar megi m.a. rekja til
þeirrar miklu gengislækkunar sem orðið hefur á krónunni. Aðspurður
hvort atvinnulífið geti brugðist við verðlagsþróuninni með frekari
kauphækkunum segir Hannes verðbólguvandann m.a. endurspegla þær
miklu kostnaðarhækkanir sem orðið hafa. Af þeim sökum telur hann
það ekki mjög uppbyggilegt framlag til lækkunar verðbólgu að hækka
kostnað fyrirtækja enn meira.