Þorsteinn Fr. Sigurðsson framkvæmdastjóri Starfs
Þorsteinn Fr. Sigurðsson lög- og rekstrarhagfræðingur hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Starfs - vinnumiðlunar og ráðgjafar ehf. sem er samstarfsfyrirtæki Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um tilraunaverkefni ASÍ og SA um aukna þjónustu við atvinnuleitendur.
Markmið fyrirtækisins er að auðvelda
atvinnuleitendum að fá störf að nýju á vinnumarkaði með því að
byggja upp náið samstarf við stéttarfélögin um eflingu
atvinnumiðlunar við þá félagsmenn sem eru í atvinnuleit og stuðla
að virkari vinnumarkaðsaðgerðum til að auka líkurnar á því að þeir
finni nýtt starf.
Þorsteinn gengdi síðast starfi framkvæmdastjóra Stjórnlagaráðs/þings og þjóðfundar 2010 á vegum Alþingis. Áður var hann framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta í 18 ár og rekstrarráðgjafi þar á undan. Þorsteinn hefur tvöfalda B.A. gráðu í viðskiptafræðum frá Memphis-háskóla í Memphis í Bandaríkjunum, MIM/MBA gráðu frá Thunderbird - School of Global Management í Phoenix í Bandaríkjunum og meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.