Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir til SA
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður nýs mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins. Stofnun menntasviðs er liður í aukinni áherslu Samtaka atvinnulífsins á menntamál og nýsköpun.
"Það er mjög mikill fengur fyrir SA að
fá Þorgerði til liðs við okkur í þessum mikilvæga málaflokki.
Öflugt menntakerfi er lykilþáttur í að bæta samkeppnisstöðu
íslensks atvinnulífs. Reynsla hennar og bakgrunnur á sviði
menntamála mun nýtast SA mjög vel," segir Þorsteinn Víglundsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
"Ég hlakka til að takast á við spennandi og mikilvægt verkefni í þágu atvinnulífsins. Efling menntunar er tvímælalaust liður í að tryggja undirstöður bæði atvinnulífs og samfélags til lengri og skemmri tíma, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins.
Þorgerður mun hefja störf hjá SA þann 1. september næstkomandi.