Þjónustuviðskipti innan EES – nýjar kröfur til erlendra fyrirtækja og íslenskra notendafyrirtækja
Þann 27. mars sl. tóku gildi ný lög um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra, nr. 45/2007. Lögin gilda um fyrirtæki sem hafa staðfestu í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, öðru EFTA-ríki eða Færeyjum og senda starfsmenn tímabundið hingað til lands í tengslum við veitingu þjónustu. Þegar í hlut eiga erlendar starfsmannaleigur ber þeim einnig að gæta ákvæða laga um starfsmannaleigur nr. 139/2005.
Upplýsingaskylda erlendra fyrirtækja
Ef erlent fyrirtæki hyggst veita þjónustu hér á landi lengur en tíu
virka daga á hverjum tólf mánuðum skal það veita Vinnumálastofnun
upplýsingar um starfsemi sína og þá starfsmenn sem sendir verða til
Íslands. Vinnumálastofnun getur óskað eftir afriti af
þjónustusamningum og ráðningarsamningum. Upplýsingagjöfin er með
rafrænum hætti á vefsetri Vinnumálastofnunar og fær fyrirtækið
staðfestingu þess að upplýsingar hafi verið veittar. Þessari
staðfestingu ber fyrirtækinu að afhenda notendafyrirtækinu hér á
landi áður en þjónustan er veitt.
Ekki er skylt að veita Vinnumálastofnun upplýsingar um starfsemi og starfsmenn þegar um er að ræða þjónustu sem felur í sér sérhæfða samsetningu, uppsetningu, eftirlit eða viðgerð tækja og er ekki ætlað að vara lengur en fjórar vikur á hverjum tólf mánuðum.
Sérstakur fulltrúi
Þau fyrirtæki sem veita þjónustu á Íslandi lengur en
fjórar vikur á hverjum tólf mánuðum og hafa hér að jafnaði sex
starfsmenn eða fleiri skulu hafa fulltrúa hér á landi og tilkynna
hann til Vinnumálastofnunar. Fulltrúinn kemur fram fyrir hönd
fyrirtækisins og hefur umboð til að veita upplýsingar og taka við
stjórnvaldsákvörðunum og eftir atvikum stefnum þannig að bindandi
sé fyrir fyrirtækið. Fulltrúi þessi getur verið úr hópi starfsmanna
eða annar aðili hér á landi, t.d. hlutaðeigandi notendafyrirtæki,
lögmaður eða ráðgjafarfyrirtæki.
Slysatryggingar
Starfsmaður sem starfar hér á landi í tvær vikur samfellt eða
lengur skal vera slysatryggður og tekur tryggingin gildi þegar
tveggja vikna samfelldum starfstíma hér á landi er náð. Í lögunum
eru ítarleg ákvæði um trygginguna en hún er sambærileg
slysatryggingu launþega sem íslenskum fyrirtækjum ber að kaupa
vegna starfsmanna sinna. Við rafræna skráningu hjá Vinnumálastofnun
ber erlendu fyrirtæki að staðfesta að starfsmenn njóti
slysatrygginga. Þótt notendafyrirtækjum hér á landi sé ekki skylt
að fylgjast með tryggingamálum fyrirtækja sem þau skipta við þá er
eðlilegt að þau við samningsgerð veki athygli erlenda fyrirtækisins
á þessari skyldu og komi því í samband við íslenskt
vátryggingafélag.
Skyldur notendafyrirtækja
Notendafyrirtæki hér á landi ber að ganga eftir því að
erlenda fyrirtækið afhendi því staðfestingu þess að það hafi
uppfyllt upplýsingaskyldu sína skv. lögunum áður en þjónustan er
veitt. Verði erlenda fyrirtækið ekki við þeirri beiðni skal
notendafyrirtækið tilkynna um það til Vinnumálastofnunar.
Notendafyrirtæki skal jafnframt láta Vinnumálastofnun í té
upplýsingar og gögn sem stofnunin telur nauðsynleg til að fylgjast
með framkvæmd laganna, s.s. þjónustusamning.
Hér er hægt að nálgast lögin á íslensku og ensku sem og lög um starfsmannaleigur:
Lög um starfsmannaleigur, nr. 139/2005 (án breytinga skv. 22. gr. laga nr. 45/2007)
Act on temporary-work agencies, No. 139/2005 (með breytingum skv. 22. gr. laga nr. 45/2007)