Þjóðfélagslýsing 1. maí!
Hún var ófögur lýsingin á þjóðfélagsástandinu í sameiginlegu ávarpi verkalýðshreyfingarinnar 1. maí. Í ávarpinu er því haldið fram að bilið milli ríkra og snauðra fari breikkandi þar sem peningamenn hafi rakað saman milljörðum á undanförnum árum í skjóli stjórnvalda sem bjóði þeim alls kyns fyrirgreiðslu og skattaívilnanir. Á sama tíma og ríkisvaldið gangi erinda efnamanna sé stöðugt þrengt að lágtekjufólki og útgjöld þess vaxi jafnt og þétt. Útgjöld til húsnæðis- og heilbrigðismála hafi margfaldast. Algengt sé að fólk veigri sér við að leita læknisþjónustu og kaupa nauðsynleg lyf vegna fátæktar og fátækt fólk standi í biðröðum við hjálparstofnanir eftir matargjöfum.
Svona ýkjur eru verkalýðshreyfingunni ekki til sóma því þessar lýsingar eiga lítið skylt við íslenskt þjóðfélag nú um stundir. Þótt vissulega séu til dæmi um mikla erfiðleika og jafnvel fátækt hér á landi, stenst þessi almenna heimsósómalýsing illa hlutlæga skoðun á íslensku þjóðfélagsástandi í dag.
Tekjujöfnuður óvíða meiri
Í fyrsta lagi þá er tekjujöfnuður á Íslandi með því mesta sem
þekkist í heiminum samkvæmt tekjuskiptingaskýrslu Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands frá sl. hausti. Jöfnuður var aðeins meiri í
einu landi (Slóvakíu) af þeim 94 sem litið var til.
Milljarðatap "peningamanna"
Í öðru lagi er það sérkennileg fullyrðing að "peningamenn"
hafi "rakað saman milljörðum" undanfarin ár. Fall hlutabréfaverðs
og gengistap á erlendum skuldum leiddi þvert á móti til þess að
margur "peningamaðurinn" tapaði miklu fé og nam samanlagt tap
"peningamanna" af þessum ástæðum mörgum milljörðum króna.
Stærstu fjármagnseigendurnir, lífeyrissjóðirnir, hafa einmitt tapað
miklum peningum vegna þróunar undanfarinna ára. Það færi lítið
fyrir öflugu atvinnulífi og atvinnustigi ef ekki nyti fjármagns og
"peningamanna."
Skattalækkanir meiri til launþega en fyrirtækja
Í þriðja lagi er vísað til breytinga á skattalögum sem
koma til framkvæmda á þessu ári og hafa því ekki enn haft teljandi
áhrif. Umræddar skattalagabreytingar voru ekki fjandsamlegri
launþegum en það að lækkanir skatta á launþega voru meiri í
krónum talið en lækkanir á fyrirtæki. Nánar tiltekið námu
lækkanirnar 1,7 milljörðum á fyrirtæki en 5,4 milljarðar á
launþega. Mörg fyrirtæki urðu fyrir nettóskattahækkun vegna
hækkunar tryggingagjaldsins og afnáms
verðbólgureikningsskila.
Bættur hagur lægst launaðra
Í fjórða lagi er það rangt að stöðugt hafi verið þrengt að
lágtekjufólki undanfarin ár. Þvert á móti hefur staða
lágtekjufólks verið bætt meira í kjarasamningum á undanförnum árum
en nokkru sinni fyrr. Rækilega var sýnt fram á þessa staðreynd í
aðdraganda samnings SA og ASÍ í desember sl.
Húsnæðisverð svipað og fyrir áratug
Í fimmta lagi er það rangt að útgjöld til húsnæðismála hafi
margfaldast. Vissulega hefur húsnæðisverð hækkað mikið á
undanförnum árum en þar á undan, raunar mest allan síðasta áratug,
fór raunverð íbúðarhúsnæðis lækkandi. Þegar litið er rúman
áratug aftur í tímann er raunverð íbúðarhúsnæðis svipað nú og
þá.
Ódýrari heilbrigðisþjónusta
Loks er það alrangt að lyfjaverð og verð fyrir
læknisþjónustu hafi margfaldast. Á fimm ára tímabilinu mars 1997
til mars 2002 hækkuðu lyf um 11,7% skv. vísitölu neysluverðs og
læknishjálp um 16,5%. Vísitalan í heild hækkaði hins vegar töluvert
meira, eða 24,5% á þessum fimm árum.
Gamaldags gífuryrði
Sameiginlegt ávarp verkalýðshreyfingarinnar virtist þannig eiga
lítið skylt við þann ábyrga málflutning sem verkalýðshreyfingin
hefur viðhaft á undanförnum árum. Einhverjum virðist því enn
finnast 1. maí gefa tilefni til að dusta rykið af gömlum átakastíl.
Innistæðulítil og gamaldags gífuryrði um örbirgð og neyð eru hins
vegar ekki viðeigandi lýsing á því þjóðfélagi sem við búum í þar
sem kjörin eru betri en nokkru sinni fyrr, kaupmáttur í sögulegu
hámarki og full atvinna ríkjandi.