Þekking á leið úr landi?
Þann 20. september næstkomandi verður haldin ráðstefna á Hótel Sögu (Súlnasal) undir yfirskriftinni "Þekking á leið úr landi? - mikilvægi samkeppnishæfs skattaumhverfis". Það eru nemendur í viðskiptafræði við Háskóla Íslands sem standa að þessari ráðstefnu með stuðningi Samtaka atvinnulífsins o.fl. og eru þeir að vekja athygli á að skoða þarf alvarlega aðgerðir á borð við að lækka tekjuskatt íslenskra fyrirtækja til að efla samkeppnishæfni íslensks starfsumhverfis. Einnig vilja þeir benda á að fyrirtæki á Íslandi þurfa nú í auknum mæli að keppa við erlend fyrirtæki um nýútskrifaða nemendur Háskóla Íslands.
Á mælendaskrá eru Bolli Þór Bollason, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Guðjón Rúnarsson, formaður skattahóps SA, Birgir Stefánsson nemandi í viðskiptafræði Háskóla Íslands og fleiri.
Ráðstefnan stendur yfir frá klukkan 13:00 til 16:00 og verður
endanlega dagskrá kynnt á næstunni.