Þarfar ábendingar McKinsey um tækifæri Íslendinga
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, tekur undir niðurstöður greiningar alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey & Company á þeim möguleikum sem Íslendingar hafa í hendi sér til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og betri lífskjörum. "Niðurstöðurnar eru í grundvallaratriðum réttar, að mínu mati og ég tel að þetta sé mjög þarft innlegg í umræðu um efnahags- og atvinnumál hér á landi. Ég vildi gjarna sjá að menn tækju þessar ábendingar alvarlega og við hjá SA erum að sjálfsögðu tilbúin að taka þátt í hverri þeirri vinnu sem menn vilja leggja í til að komast áfram."
Rætt var við Vilhjálm í Fréttablaðinu í tilefni af því að McKinsey kynnti í vikunni úttekt sína á hagvaxtarmöguleikum Íslands. Umfjöllun um úttektina má lesa á vef SA og á vef Viðskiptaráðs. Þar segir Hreggviður Jónsson, formaður ráðsins m.a.:
"Greiningin sem nú liggur fyrir sýnir okkur að tækifærin til
úrbóta eru mýmörg. Í þeim efnum er okkur tamt að horfa til
stjórnvalda og stjórnsýslu. En þó vinna McKinsey dragi fram
veikleika í regluverki og áherslum stjórnmála, þá er ljóst að
tækifærin liggja ekki síður á vettvangi atvinnulífs, hjá íslenskum
fyrirtækjum. Þar sem margt má betur fara og brýnt að forsvarsmenn í
íslenskra fyrirtækja bregðist við og vinni að úrbótum þar sem við
á.
Nú er það okkar að nýta þessa góðu vinnu McKinsey og við eigum
mikið undir því að okkur takist vel til. Við verðum að stíga upp úr
núverandi farvegi, treysta samvinnu og móta stefnu og aðgerðir sem
efla verðmætasköpun og bæta lífskjör Íslendinga til komandi ára.
Það er mín skoðun að hugmyndir þær sem nú liggja fyrir um
samstarfsvettvang hagsmunaaðila þar sem áhersla verður lögð á
eftirfylgni við vinnu McKinsey, með áherslu á mótun hagvaxtarstefnu
og útfærslu aðgerða, verði að ná fram að ganga."
Sjá nánar:
Skýrsluna má nálgast á vef McKinsey og fréttatilkynningu fyrirtækisins má finna hér.