Tekjumunur kynjanna hefur minnkað
Launakönnun Hagstofunnar, áður launakönnun Kjararann-sóknarnefndar, sýnir að tekjumunur kynjanna hefur minnkað á undanförnum árum. Með tekjum er hér átt við heildarlauna-tekjur, þ.m.t. vegna yfirvinnu, en ekki aðrar tekjur eins og fjármagnstekjur eða bætur.
Regluleg laun kvenna hækkað meira samfellt frá
1997
Ástæður minnkandi tekjumunar kynjanna undanfarin ár eru fjölmargar
en fjórar veigamiklar skýringar blasa þó við. Í fyrsta lagi hefur
yfirvinna dregist saman hjá báðum kynjum, a.m.k. á almennum
vinnumarkaði, en meira hjá körlum. Í öðru lagi sýna launakannanir
að regluleg laun kvenna, þ.e. laun fyrir utan yfirvinnu, hafa
hækkað samfellt meira en karla frá árinu 1997. Í þriðja lagi hafa
þær áherslur kjarasamninga undanfarin samningstímabil, að hækka
samningsbundna launataxta umfram laun almennt gengið eftir og það
hefur væntanlega komið konum til góða. Í fjórða lagi þá hefur
menntun kvenna varið vaxandi undanfarin ár og þær tekið við
ábyrgðarmeiri störfum en áður og það skilar sér í minni mældum
launamun kynja í heild.
Meiri yfirvinna karla, oftar í stjórnunarstöðum
Augljósustu ástæður tekjumunar milli kynja eru þær að
karlar vinna enn meiri yfirvinnu en konur, þótt munurinn fari
minnkandi, hærra hlutfall karla í stjórnunarstöðum og oft á tíðum
meiri starfsreynsla karla. Fyrir slíkum þáttum er ekki leiðrétt í
launakönnun sem þessari, enda er hér ekki um tölfræðirannsókn að
ræða, heldur hefðbundna launakönnun.
Aukin menntun kvenna
Meðfylgjandi súlurit sýnir hvernig hlutfall heildarlauna kvenna af
heildarlaunum karla hefur þróast milli áranna 1998 og 2004. Í heild
er munurinn ekki svo mikill, en hlutfallið hækkaði úr 74% í 76%.
Mun athyglisverðara er að skoða þróunina innan helstu starfsstétta.
Þannig hækkar hlutfallið hjá sérfræðingum úr 79% í 84% og hjá
skrifstofufólki úr 70% í 77%. Á þessum sviðum gætir eflaust áhrifa
aukinnar menntunar og aukins hlutar kvenna í stjórnunarstöðum. Hjá
verkafólki hækkar hlutfallið úr 74% í 77% og þar kann einkum að
gæta áhrifa sérstakrar hækkunar launataxta.
