Tekjulækkun á ári sem svarar mánaðarveltu
Samtök fiskvinnslustöðva héldu á dögunum fjölsóttan fund um þá margþættu erfiðleika sem rækjuvinnslan hefur búið við undanfarin misseri. Auk rækjumanna voru á fundinum fulltrúar frá SA, Hafró, sjávarútvegsráðuneyti og Seðlabanka. Þrátt fyrir að gengishækkun krónunnar varði allar útflutnings- og samkeppnisgreinar þá kemur hún sérstaklega illa við rækjuvinnsluna vegna langvarandi erfiðleika í greininni.
Tekjulækkun á ári sem svarar mánaðarveltu
Arnar Sigurmundsson, formaður SF, gat þess að nú væru um 15
rækjuverksmiðjur í gangi af 19 verksmiðjum í landinu og væru nú
flestar keyrðar á einni vakt. Aðeins tvær verksmiðjur keyra á tveim
vöktum um þessar mundir. Formaðurinn lýsti í hnotskurn vandanum með
glæru sem sýnir
þróun afurðaverðs sl. eitt og hálft ár sem var rúmar 500 kr/kg
af soðinni og pillaðri (s/p) rækju í jan 2002 og er nú komin niður
í um 380 kr/kg. Á ársgrunni þýðir þetta að tekjur rækjuiðnaðarins
sem eru um 12 milljarðar á ársgrunni lækka um sem svarar
mánaðarveltu rækjuverksmiðjanna eða um 1 milljarð á ársgrunni.
Þrátt fyrir að gengishækkun krónunnar varði allar útflutnings- og
samkeppnisgreinar þá kemur hún sérstaklega illa við rækjuvinnsluna
vegna langvarandi erfiðleika í greininni. Sjá nánar á
heimasíðu SF.