Taktlaus dans
Fjárlög 2017 voru afgreidd með 25 milljarða króna afgangi sem svarar til 1% af landsframleiðslu. Þetta er of lítill afgangur miðað við ríkjandi efnahagsaðstæður. Hagvöxtur var óvenju mikill á síðasta ári og verður það fyrirsjáanlega einnig á þessu ári. Góð hagstjórn felst í því að jafna hagsveiflur með því að reka ríkissjóð með myndarlegum afgangi þegar hagvöxtur er mikill og halla þegar hann er lítill.
Ekki er að sjá ábyrga hagstjórn í nýsamþykktum fjárlögum fyrir næsta ár. Þrátt fyrir að útgjöld ríkissjóðs hafi aukist um 9% árið 2016, og hafi vaxið samfleytt frá árinu 2012, þá á enn að bæta í og er gert ráð fyrir 4% aukningu á árinu 2017. Yfir hagsveifluna þarf afkoman að vera í jafnvægi, þ.e. afgangur þegar vel árar þarf að vera jafn hallanum þegar illa árar. Í ljósi mikils hagvaxtar þyrfti aðhald ríkisins að vera mun meira og afkoman betri.
Áætlanir gera ráð fyrir að núverandi hagvaxtarskeið, sem þegar er orðið eitt hið lengsta í Íslandssögunni, lengist enn. Útgjöld vaxa hraðar en á síðasta hagvaxtarskeiði sem stóð frá 2004 – 2007. Skuldir ríkissjóðs eru tvöfalt meiri en þá. Áhyggjuefni er hversu lítill viðbúnaður er vegna óvæntra atburða og hugsanlegs viðsnúnings í efnahagslífinu því núverandi uppsveifla mun taka enda.
Að mati efnahagssviðs SA nema þensluáhrif fjárlaga 2017 um 2% af landsframleiðslu. Reynsla undangenginna ára kennir að þensluáhrif ríkisfjármála verða mun meiri en ákveðið hefur verið í fjárlögum. Samkvæmt ríkisreikningi fóru ríkisútgjöld að jafnaði 5% umfram fjárlög á árunum 2010-2015. Sporin hræða í þessum efnum.
Vandinn er alltaf sá sami. Helsta áskorun hagstjórnar á Íslandi er sú að opinberu fjármálin, peningastefnan og vinnumarkaðurinn vinna ekki saman. Því þarf að breyta. Þeir sem ekki dansa í takt troða öðrum um tær.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Greinin birtist í Fréttablaðinu 3. janúar 2017.