Tækifæri til starfsþjálfunar stórefld
Háskóli Íslands, menntamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök atvinnulífsins hafa tekið höndum saman því skyni að stórefla tækifæri til starfsþjálfunar hér á landi.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands og Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins handsöluðu samkomuleg um þetta efni nýlega. Á myndina vantar Aldísi Hafsteinsdóttur, formann Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nemendum við Háskóla Íslands mun með þessu samkomulagi standa til boða fleiri og fjölbreyttari tækifæri en áður til að kynnast störfum sem tengjast verkefnum þeirra og viðfangsefnum í Háskóla Íslands. Þannig verða nemendur enn betur undirbúnir til að takast á við margbreytileg og krefjandi verkefni sem bíða þeirra að námi loknu.
Um er að ræða 6 ECTS eininga starfsþjálfun á haust- eða vorönn sem felur í sér þjálfun nemenda í að vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga. Verkefnin skulu tengjast námi nemenda og reyna á þekkingu og færni sem þeir hafa aflað sér.
Fyrirtæki sem eru áhugasöm um að taka þátt í verkefninu eru hvött til að sækja um á vefsíðu Tengslatorgs Háskóla Íslands eða í tölvupósti á tengslatorg@hi.is.
Hér má sjá 20 mínútna umræðuþátt um kosti starfsþjálfunar á vegum atvinnulífs, hins opinbera og HÍ:
Stóreflum starfsþjálfunNemendum við Háskóla Íslands mun með þessu samkomulagi standa til boða fleiri og fjölbreyttari tækifæri en áður til að kynnast störfum sem tengjast verkefnum þeirra og viðfangsefnum í Háskóla Íslands. Þannig verða nemendur enn betur undirbúnir til að takast á við margbreytileg og krefjandi verkefni sem bíða þeirra að námi loknu. Um er að ræða 6 ECTS eininga starfsþjálfun á haust- eða vorönn sem felur í sér þjálfun nemenda í að vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga. Verkefnin skulu tengjast námi nemenda og reyna á þekkingu og færni sem þeir hafa aflað sér. Fyrirtæki sem eru áhugasöm um að taka þátt í verkefninu eru hvött til að sækja um á vefsíðu Tengslatorgs Háskóla Íslands eða í tölvupósti á tengslatorg@hi.is.
Posted by Samtök atvinnulífsins on Mánudagur, 19. apríl 2021